Brauðbollurnar hennar Berglindar

Ljúffengar og fljótlegar.
Ljúffengar og fljótlegar. mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir

Þessar brauðbollur eru til háborinnar fyrirmyndar enda ákaflega vinsælar. Bollur sem þessar er gott að baka í miklu magni og frysta. Sjálf segir Berglind Hreiðarsdóttir á Gotteri.is sem bakaði bollurnar að hún frysti þær og hiti þær síðan aftur í ofninum þegar hún hyggst borða þær og þá verði þær eins og nýbakaðar. Bestar séu þær með smjöri og osti.

Skólabollur

  • 120 gr smjör
  • 3,5 dl mjólk
  • 1 pk þurrger
  • 1 dl púðursykur
  • 640 gr heilhveiti
  • ½ tsk salt
  • 2 dl fimm korna blanda
  • Egg til penslunar

Aðferð:

  1. Bræðið smjör við vægan hita og hitið mjólkina út í þar til ylvolgt (passa að hita ekki of mikið til að drepa ekki gerið). Blandið þurrgerinu í volga blönduna og og leyfið að gerjast í nokkrar mínútur.
  2. Setjið öll þurrefnin saman í hrærivélarskálina og hellið mjólkurblöndunni saman við og hnoðið með króknum. Stundum þarf að bæta smá meira af heilhveiti saman við en best er að reyna að vinna deigið eins blautt og hægt er fyrir hefun því þá verður auðveldara að hnoða það í bollur.
  3. Hjúpið skál með matarolíu og veltið deiginu upp úr henni, setjið því næst rakan klút/plastfilmu yfir skálina og leyfið deiginu að hefast í um 45 mínútur.
  4. Hnoðið í bollur (c.a 20-22 stk), raðið á bökunarpappír, setjið klútinn aftur yfir og leyfið að hefast í um 30 mínútur.
  5. Hitið ofninn 220°C, penslið bollurnar með eggi og bakið í um 10 mínútur eða þar til bollurnar verða gylltar.
Sniðugar í nestið.
Sniðugar í nestið. mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert