Súrdeigsbrauðréttur með osta- og beikonfyllingu

Smakkast dásamlega.
Smakkast dásamlega. mbl.is/Kristinn Magnússon

Við höldum áfram með brauðréttaeinvígið ógurlega þar sem ritstjórn Matarvefjarins galdraði fram girnilega brauðrétti í leitinni að besta brauðrétti í heimi.

Þessi brauðréttur er mjög í takt við tíðarandann en eins og allir vita er súrdeigsbrauð ákaflega mikið í tísku þessi dægrin. Að sjálfsögðu væri hægt að að nota venjulegt brauð í réttinn.

Hér er það útlitið sem skiptir töluverðu máli því hann steinliggur á veisluborðinu og sómir sér vel í hvaða boði sem er.

Súrdeigsbrauðréttur með osta- og beikonfyllingu

  • 1 súrdeigsbrauð
  • 1 poki rifinn ostur
  • 200 gr. rjómaostur
  • 1 camembert
  • 8 sneiðar af beikoni
  • 2 dl rjómi
  • 2 stilkar garðablóðberg (timían)
  • 8 sveppir
  • sítrónugras
  • hvítlaukur

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180 gráður.
  2. Byrjið á því að skera beikonið smátt niður og steikja á pönnu. Því næst skal saxa sveppina niður og bæta út á pönnuna ásamt garðablóðberginu. Steikið og alveg í blálokin skal rífa ferskt sítrónugras (bara smá) og ferskan hvítlauk (líka bara smá) yfir.
  3. Setjið rjómann og ostinn út á pönnina og hrærið þar til osturinn er bráðinn.
  4. Skerið brauðið þversum og látið skurðinn ná alveg að botninum en passi að skera ekki í gegn. Endurtakið leikinn langsum og búið þannig til fallegt tíglamynstur.
  5. Þegar osta- og beikonblandan er tilbúin skal hella henni varlega út á brauðið. Hér þarf töluverða fingrafimi og gott er að nota könnu til að koma blöndunni varlega á milli.
  6. Vefjið brauðinu í álpappír og setjið í ofninn í 15-20 mínútur.
  7. Stillið ofninn á grill og takið brauðið út og fjarlægið álpappírinn (eða opnið hann að ofan þannig að osturinn fái að malla á yfirborðinu og verða brúnt og girnilegt).
  8. Berið fram í heilu lagi.
Svona lítur dásemdin út.
Svona lítur dásemdin út. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert