Íslendingar eiga þrjá keppendur

Lúðvík Kristinsson, Hinrik Lárusson og Hafsteinn Ólafsson.
Lúðvík Kristinsson, Hinrik Lárusson og Hafsteinn Ólafsson. mbl.is/aðsendar myndir

Íslendingar eiga tvo keppendur í matreiðslu í norðurlandakeppninni Nordic Chef Of The Year og keppanda í framreiðslukeppninni Nordic Waiter Of The Year.

Keppnin í matreiðslu er með „mystery basket“ sniði þar sem keppendur fá að sjá skylduhráefnin degi fyrir keppni og skila síðan af sér þriggja rétta matseðli fyrir 12 gesti á keppnisdegi og fá Framreiðslumaðurinn vinnur með matreiðslumönnum við þjónustu á keppnismatnum og þarf einnig í keppninni að sýna fagleg vinnubrögð í sínum aðgerðum, para vín við réttina og útbúa kokteila. Keppning hófst kl 8:00 í morgun að dönskum tíma.

Hafsteinn Ólafsson sem er Kokkur ársins 2017 og starfar á Sumac Grill + Drinks keppir í Nordic Chef, í Nordic Chef Junior keppir Hinrik Lárusson frá Grillinu. Í framreiðslu er það Lúðvík Kristinsson frá Grillinu sem keppir fyrir Íslands hönd.

Þjálfari Hafsteins og dómari í matreiðsluhluta keppninnar er Þráinn Freyr Vigfússon, þjálfari Hinriks er Sigurður Laufdal. Thelma Björk Hlynsdóttir þjálfar Lúðvík og dæmir jafnframt í framreiðslukeppninni. Úrslit verða tilkynnt í kvöld.

Klúbbur matreiðslumeistara sendir þessa þrjá keppendur til leiks og rekur klúbburinn afreksstarf í matreiðslu og keppnisstarf ungra matreiðslumanna í Kokkalandsliðinu og keppnina Kokkur ársins ásamt þátttöku í alþjólegum keppnum eins og hér um ræðir. Skipulag keppninnar er í höndum Norðurlandasamtaka matreiðslumeistara og fer keppnin fram í Herning samhliða matvælasýningunni Foodexpo, að fram kemur í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert