Helga María Ragnarsdóttir tók þá ákvörðun á dögunum að breyta lífi sínu. Helga María heldur úti blogginu Veganistur ásamt systur sinni Júlíu Sif, en þær systur eru miklir meistarar og deila á blogginu bæði fróðleik og uppskriftum.
Helga María segir frá því hvernig hún horfði á myndband sem fékk hana til að endurskoða líf sitt og breyta því á 365 dögum.
„Ég hef í rauninni eytt gríðarlegum tíma í að haga mér og hugsa eins og það sé ekki í mínum verkahring að búa mér til það líf sem ég vil lifa, svona eins og að með því að viðurkenna að ábyrgðin sé virkilega mín þurfi ég að standa upp og gera eitthvað í því, sem er auðvitað ekki jafn þægilegt og að sitja heima og bíða eftir að lífið banki upp á og bjóði manni í einhverskonar allsherjar „make-over“,“ segir Helga en það eru sjálfsagt margir sem tengja við þessi orð.
„Eftir að hafa horft á myndbandið, hugsað um það í nokkra daga, horft á það aftur, og svo einu sinni enn, ákvað ég að taka Dottie til fyrirmyndar og skora á sjálfa mig að breyta lífi mínu næstu 365 daga og leyfa ykkur að fylgjast með. Ég er ekki að tala um áramótaheit sem ég gleymi eftir viku, heldur er ég að tala um það að leggja mig alla fram, í fyrsta sinn á ævinni, við að laga það sem ég hef viljað laga en aldrei komið mér í.“
„Síðustu ár hef ég verið óánægð með margt í lífinu mínu og margt í eigin fari en það er einmitt ákveðið vandamál út af fyrir sig. Ég hef nefnilega verið föst í því að einblína einungis á það sem ég er ósátt við og það sem ég vil HÆTTA að gera í stað þess að hugsa um hvernig ég get bætt nýjum og jákvæðum venjum inn í lífið mitt. Næstu 365 daga ætla ég hinsvegar að einbeita mér að því að tileinka mér jákvæðar venjur sem ég tel að muni gera mér og fólkinu í kringum mig gott. Í stað þess að hugsa stanslaust um það sem ég vil hætta að gera ætla ég að hugsa um það sem ég vil byrja að gera. Ég ætla að gera mitt besta, en ætla á sama tíma að muna að „mitt besta“ getur breyst frá degi til dags og að þótt mér gangi verr í dag en í gær þýðir það ekki að ég sé að standa mig illa eða að mér sé að misheppnast,“ segir Helga en meðal þess sem hún hefur einsett sér að gera á næstu 365 dögum er:
Við mælum með því að lesendur fylgist með vegferð Helgu og sláist í hópinn enda fátt meira gefandi en að sinna sjálfum sér og setja sér markmið.
Bloggið hennar Helgu er hægt að nálgast hér: Veganistur