Pönnusteikt rauðspretta með smælki

Rauðsprettan lítur grinilega út enda frábær fiskur.
Rauðsprettan lítur grinilega út enda frábær fiskur. Eggert Jóhannesson

Sigurjón Bragi Geirsson vakti verðskuldaða athygli á dögunum þegar hann hafnaði í öðru sæti í keppninni Kokkur Íslands 2018 sem fram fór í Hörpu. Þessi afbragðs uppskrift er úr hans smiðju og er í senn ákaflega bragðgóð, holl og mannbætandi. Það er nefnilega fátt betra en að gæða sér á Hollandaise sósu með fiski – sannið til.

Rauðspretta

  • 1 flak
  • Smjör
  • Salt

Aðferð: Rauðsprettan er flökuð og skorin í tvennt. Hitið pönnu með olíu. Rauðsprettan er lögð í pönnuna heita, krydduð til með salti og pipar. Þegar rauðsprettan er farin að verða gullin á lit bætið við smjöri og látið það bráðna. Þegar smjörið er bráðnað snúið henni við og ausið með smjörinu í 30 sek og takið svo af pönnunni.

Smælki-kartöflur

  • 4 smælki

Aðferð: Smælki-kartöflur soðnar með hýðinu þar til mjúkar. Kældar með köldu vatni og skornar í tvennt, steiktar á pönnu með smjöri og hvítlauk, smakkaðar til með salti og pipar.

Íslenskar gulrætur ofnbakaðar

  • 1 poki gulrætur
  • Olía
  • Salt
  • Pipar

Aðferð: Gulrætur í ofnskúffu með olíu, salti og pipar. Bakað á 160 í 30 mín. Endinn skorinn af og skornar í hæfilega stærð til að gefa með fiskinum. Gott að hita gulræturnar með kartöflunum þegar þær eru steiktar.

Epla- og möndludressing

  • 1 grænt epli
  • 50 g möndlur heilar
  • 1 shallot laukur
  • 50 g dill
  • 20 g ólívuolía
  • 5 g eplaedik

Aðferð: Epli, möndlur, shallot-laukur og dill saxað fínt í ílát. Allt sett saman með olíunni og edikinu. Smakkað til með salti

Hollandaise sósa

  • 1 eggjarauða
  • 100 g smjör
  • 1 sítróna
  • Salt

Aðferð: Píska eggjarauður yfir hitabaði í 70 gráður. Bræða smjör og hafa það um 60 gráður, blanda smjörinu varlega útí eggjarauðurnar og hræra stöðugt í blöndunni. Þegar allt smjörið er komið saman við er bara að smakka sósuna til með salti og sítrónusafa.

Sigurjón Bragi Geirsson hreppti annað sætið í keppninni Kokkur Íslands …
Sigurjón Bragi Geirsson hreppti annað sætið í keppninni Kokkur Íslands 2018. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert