Lífstílsbloggari umbreytti eldhúsinu á 24 tímum

Hér má sjá myndir af eldhúsinu fyrir og eftir.
Hér má sjá myndir af eldhúsinu fyrir og eftir. mbl.is/Thank Fifi

Lífstílsbloggarinn Wendy H Gilmour tók sig til um daginn og tók eldhúsið sitt í gegn. Eldhúsið var alls ekki eitthvað sem við skilgreinum sem umhverfisslys en mátti alveg við má andlitslyftingu, sérstaklega þar sem persónulegur stíll Gilmour rímaði ekki beint við það.

Aðferðin var einföld. Skápar voru málaðir og síðan voru notaðir svokallaðir flísalímmiðar sem hægt er að líma beint á yfirborð og líta út eins og flísar.

Eins og sjá má er útkoman eiginlega bara algjör negla og þar sem okkur grunar að einhverjir lesendur geti nýtt sér þetta snilldarráð þá látum við hlekkinn inn á flísalímmiðasíðuna fylgja með.

Flísalímmiðar: Beija Flor World

Lífstílsblogg Wendy H Gilmour.

Umbreytingin er virkilega vel heppnuð.
Umbreytingin er virkilega vel heppnuð. mbl.is/Thank Fifi
Flísalímmiðarnir setja punktinn yfir i-ið.
Flísalímmiðarnir setja punktinn yfir i-ið. mbl.is/Thank Fifi
Límmiðarnir gera ótrúlega mikið.
Límmiðarnir gera ótrúlega mikið. mbl.is/Thank Fifi
Og með hvíta Tolix stóla sem eru mikið í tísku.
Og með hvíta Tolix stóla sem eru mikið í tísku. mbl.is/Thank Fifi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert