Hægeldaðir lambaskankar í rauðvínssósu

mbl.is/Íslenskt lambakjöt

Það er fátt betra á frábærum sunnudegi en hægeldaðir lambaskankar. Hér leikur rauðvínið stórt hlutverk í bland við lágstemmt en áhrifaríkt timíanið sem á það til að taka mat upp á næsta stig. Fullkominn kvöldverður svo ekki sé meira sagt.

Hægeldaðir lambaskankar í rauðvínssósu

  • 8 lambaskankar
  • 2 msk. olía
  • salt og nýmalaður pipar
  • 4 beikonsneiðar, skornar í 3 cm bita
  • 6-8 skalotlaukar, skrældir
  • 15 sveppir
  • 1 msk. tómatþykkni
  • 3 lárviðarlauf
  • 3 stórar tímíangreinar
  • 1 rauðvínsflaska
  • 2-4 dl vatn
  • sósujafnari
  • 50 g smjör
  • 2 msk. steinselja, smátt söxuð

Aðferð:

  1. Penslið lambaskanka með olíu og kryddið með salti og pipar.
  2. Setjið kjötið í eldfast mót og bakið í 190°C heitum ofni í 10-15 mín.
  3. Hitið olíu á pönnu og látið beikon, lauk og sveppi krauma í 2 mín.
  4. Hellið síðan blöndunni yfir skankana ásamt tómatþykkni, lárviðarlaufum, tímíani og rauðvíni. Lækkið hitann í 120°C og bakið í 3 1/2-4 klst. Hellið þá vökvanum úr ofnskúffunni í pott ásamt vatni og þykkið með sósujafnara.
  5. Bætið smjöri í sósuna og hrærið í með písk þar til smjörið hefur bráðnað.
  6. Hellið þá sósunni yfir skankana og stráið steinselju yfir.
  7. Berið fram með kartöflumús.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert