Bestu lakkrís eggin í ár!

Hér skal skýrt tekið fram að hér að neðan er röðunin handahófskennd og að hér er um að ræða álit sérlegra álitsgjafa Matarvefsins á páskaeggjunum í ár. Vonandi er úttektin leiðbeinandi og hjálpar ykkur í leitinni að uppáhalds egginu ykkar.

Appolo lakkrís páskaegg með fylltum lakkrís – Góa

„Fínasta egg með algjörlega réttu hlutfalli af lakkrís,” sagði einn álitsgjafanna og við erum ekki frá því að hann hafi hitt naglann á höfuðið. Marsípanið er undursamlegt í bland við lungamjúkan lakkrísinn. Skothelt egg sem byggir á traustum grunni.

Lakkrísegg - Nói Síríus

Þetta egg er aldeilis sérdeilis stútfullt af lakkrís svo að mörgum þótti nóg um. En ekki lakkrísunnendum. Þeir fögnuðu dátt og töluðu um að hér væri á ferðinni „egg með hárréttu magni af lakkrís.”

Draumegg með Freyju lakkrís – Freyja

Þetta er pottþétt draumaegg ansi margra. Eiginlega allra þeirra sem sjá ekki sólina fyrir hinu stórkostlega súkkulaði sem Draumur er. Þessi samsetning er 100% og í egginu er verulega gott hlutfall milli lakkríss og súkkulaðis.

Síríus rjómasúkkulaði með saltlakkrísflögum og sjávarsalti – Nói Síríus

Þetta egg var umdeilt. Sumir héldu vart vatni af hrifningu á meðan aðrir formæltu því og sögðu það of saltað. Þetta sýnir hvað einstaklingsmatið er misjafnt og má leiða af þessu að eggið sé draumaegg þeirra sem elska lakkrís og salt. Einn álitsgjafinn hafði á orði að „eggið væri skemmtilegt og gott – og stútfullt af karakter.”

Appolo lakkrís páskaegg með lakkrís - Góa

Galdurinn við að framleiða egg með lakkrís – en ekki of miklum lakkrís var fullkomnaður í þessu eggi. Gott jafnvægi fyrir þá sem telja lakkrís góðan en ekki lífsnauðsynlegan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert