Eggjandi brönsuppskriftir að hætti Rósu

Huggulegur morgunverður eða hádegisverður sem gerir kroppnum gott.
Huggulegur morgunverður eða hádegisverður sem gerir kroppnum gott. mbl.is/Aðsend

Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi og matgæðingur, deilir hér huggulegum uppskriftum að eggjaréttum sem henta vel í bröns. Uppskriftirnar eru úr bók­inni henn­ar „Hollt nesti, morg­un­mat­ur og milli­mál“ sem kom út haustið 2016.

Eggjabaka með reyktum laxi 
Fyrir 4

8 egg
½ dl mjólk eða rjómi
salt og grófmalaður pipar
2 handfyllir spínat, saxað
300 g reyktur lax, í bitum
2-3 msk. vorlaukur eða graslaukur, smátt saxaður
2 msk. rifinn ostur

Aðferð:
1. Hitið ofninn í 220 gráður.
2. Hrærið vel saman egg og mjólk eða rjóma. Saltið og piprið.
3. Bætið spínati, lax og lauk saman við.
4. Stráið osti út í hræruna.
5. Hellið í eldfast mót og bakið í um 20 mínútur.
Egg bökuð í avókadó er hollur og góður morgunverður.
Egg bökuð í avókadó er hollur og góður morgunverður. mbl.is/aðsend

Bökuð egg í avókadó 
Fyrir 2

1 avókadó
2 egg
2-3 sneiðar beikon, steikt og saxað
1-2 msk. gras- eða vorlaukur, smátt saxaður
grófmalaður pipar eða sítrónupipar

Aðferð:
1. Hitið ofninn í 200 gráður.
2. Skerið avókadó í tvennt og takið steininn úr.
3. Skafið varlega með teskeið í holurnar þar sem steinninn var til að stækka þær og búa til betra pláss fyrir eggin.
4. Setjið avókadó í lítið eldfast mót og tryggið að þau standi upprétt og hallist ekki.
5. Hellið síðan eggjum varlega í holurnar.
6. Stingið í ofninn og bakið í um 15 mínútur.
7. Kryddið með pipar og stráið söxuðu beikoni og gras- eða vorlauk yfir réttinn.

Rósa Guðbjartsdóttir og hænurnar hennar.
Rósa Guðbjartsdóttir og hænurnar hennar. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert