Ofursvalt IKEA-eldhús Stine Goya

Stine Goya í eldhúsinu fagra.
Stine Goya í eldhúsinu fagra. mbl.is/Reform

Danski hönnuðurinn Stine Goya er eitursvöl og því kom það ekki á óvart að eldhúsið hennar væri það líka. Það sem kom hins vegar á óvart var að það er úr IKEA – það er að segja skáparnir en framhliðarnar eru frá Reform sem við höfum áður skrifað um hér á Matarvefnum.

Eins og sjá má á myndunum er eldhúsið algjörlega einstakt. Gullframhliðarnar setja ákveðinn stimpil á eldhúsið sem fær harðkjarna royalista til að kippast til og liturinn á veggjunum er bara fyrir hina hugrökku. Síðast en ekki síst eru það veggljósin sem passa svo vel inn í þetta óvenjulega eldhús að okkur er orða vant.

Húrra fyrir Stine – sem þorir ávallt að vera öðruvísi og veita okkur hinum innblástur.

Einfalt, glæsilegt og sjúklega töff.
Einfalt, glæsilegt og sjúklega töff. mbl.is/Reform
Gullvaskur og svört borðplata.
Gullvaskur og svört borðplata. mbl.is/Reform
Eldhúsið er ekki stórt en vinnuplássið er gott.
Eldhúsið er ekki stórt en vinnuplássið er gott. mbl.is/Reform
Stíleseringin er upp á tíu.
Stíleseringin er upp á tíu. mbl.is/Reform
Ísskápurinn er innbyggður.
Ísskápurinn er innbyggður. mbl.is/Reform
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert