Bestu lúxús eggin!

Hafliði Ragnarsson súkkulaðimeistari og páskaeggin hans
Hafliði Ragnarsson súkkulaðimeistari og páskaeggin hans Haraldur Jónasson/Hari

Kæru lesendur! Spennið nú greipar og búið ykkur undir að bráðna. Hér kynnum við það besta sem í boði er – sjálfan lúxúseggjaflokkinn góða sem inniheldur allt það allra besta sem í boði er. Tekið skal skýrt fram að uppröðunin hér að neðan er algjörlega handahófskennd enda er hér einungis um að ræða upptalningu á eggjunum og greiningu á þeim.

Dulche blond – Mosfellsbakarí

Hólí mólí. Þetta egg rosalegt í alla staði. Silkimjúkt, sjúklega vandað og karmellukeimurinn af súkkulaðinu fær þig til að mala eins og ættbókarfærður angóraköttur. Svo er eggið fyllt með konfekti sem slær hinn fullkomna lokatón.

Páskaegg með konfekti – Nói Síríus

Þetta egg er æði. Það er í grunninn hefðbundið Nóa egg en í kassa og skreytt og fyllt með konfekti sem er bara sjúkelega vandað. Ef þú vilt taka páskaeggið upp á næsta stig er þetta málið.

Dökkt súkklulaði – Mosfellsbakarí

Þetta súkkulaði er fyrir alvöru súkkulaðispekinga. Þetta er súkkulaðið sem Hafliði Ragnarsson súkkulaðimeistari Mosfellsbakarís valdi sérstaklega en það er Perú og er 70%. Beiskt og bragðmikið.

Belgískt gæða mjólkursúkkulaði – Mosfellsbakarí

Eins og öll Mosfellsbakaríseggin er þetta frábært egg. Kannski það óhefðbundnasta af þeim sem boðið er upp á en algjörlega frábært egg úr virkilega bragðgóðu súkkulaði.

Freyjuegg – dökkt sælkerasúkklaði – Freyja

Þetta egg kom verulega á óvart. Það þótti bragðgott og standa vel undir væntingum. Lítið er af dökku súkkulaði í ár þannig að þetta firnasterka Freyjuegg mun hlaupa alla leið í mark með töluverðu forskoti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert