Pínulitlu eldhúsi umbreytt svo um munaði

Fyrir- og eftir-myndirnar af eldhúsinu. Munurinn er nokkuð mikill svo …
Fyrir- og eftir-myndirnar af eldhúsinu. Munurinn er nokkuð mikill svo ekki sé fastar að orði kveðið. mbl.is/The Contemporist

Þetta er ekkert míní-meikóver eins og það myndi kallast á engilsaxnesku heldur harðkjarna rúst svo fagmál sé notað.

Það er bókstaflega ekkert eftir af gamla eldhúsinu enda var það afspyrnuljótt og komið vel til ára sinna. Nýja eldhúsið er hin vegar afskaplega hresst og liturinn er alveg til að æra óstöðugan.

Þetta fína eldhús er staðsett í Brasilíu sem útskýrir kannski litagleðina en hönnuður þess vildi afmarka svæðið sem er í opnu rými eins vel og kostur var með sterkum lit.

Við erum á því að það hafi tekist vel hjá honum.

Það var FC Studio sem hannaði eldhúsið.

mbl.is/The Contemporist
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert