Þroskaðu avókadó á 10 mínútum

Avókadó gefur húðinni raka og verndar hana gegn sólinni.
Avókadó gefur húðinni raka og verndar hana gegn sólinni. Skjáskot/Instagram

Vissir þú að til er aðferð til að breyta óþroskuðu og grjóthörðu avókadó í lungamjúka og fullkomlega tilbúna dásemd á aðeins 10 mínútum?

Það eina sem þú þarft að gera er að hita ofninn upp í 90 gráður, pakka avókadóinu í álpappír og stinga inn í ofn í 10 mínútur.

Sérfræðingarnir fullyrða að þetta virki... sem boðar að sjálfsögðu byltingu fyrir íslenska avókadóneytendur sem hafa hingað til neyðst til að stara í örvæntingu á óþroskuð avókadóin með þolinmæðina eina að vopni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert