Mikil matarupplifun fólgin í íbúðaskiptum

Snæfríður Ingadóttir ásamt eiginmanni sínum, Matthíasi Kristjánssyni og dætrum þeirra …
Snæfríður Ingadóttir ásamt eiginmanni sínum, Matthíasi Kristjánssyni og dætrum þeirra þremur. mbl.is/aðsend mynd

„Yfirleitt sammælist fólk um það að skilja einhvern mat eftir í ísskápnum áður en haldið er í ferðalagið, því það er fátt notalegra eftir langt ferðalag en að koma inn á nýtt heimili og geta sest niður, hellt sér upp á kaffi og gefið öllum eitthvað snarl að borða í stað þess að byrja á því að hendast út í búð eftir einhverjum bita,“ segir Snæfríður Ingadóttir, höfundur bókarinnar Íbúðaskipti, sem kom út á dögunum.

Snæfríður er mikill ferðalangur og hefur ásamt fjölskyldu sinni ferðast um heim allan með því að nýta sér íbúðaskipti en Matarvefnum lék forvitni á að vita hvort venja væri að skilja eftir mat og hvernig þetta væri yfirleitt gert – svona matvælalega séð.

„Ég skil yfirleitt eftir ávexti, brauð og álegg en eins reyni ég að skilja eftir eitthvað þjóðlegt eins og skyr, malt, harðfisk, rabbabarasultu, íslenskan bjór, rúgbrauð og súkkulaði. Sjálfri finnst mér alltaf skemmtilegast þegar eitthvað lókal góðgæti bíður okkar á þeim heimilum sem við fáum lánuð, eitthvað sem er í uppáhaldi hjá húsráðandanum sem verður síðan í uppáhaldi hjá okkur á ferðalaginu. Það er nefnilega oft þannig að oft prófar maður frekar mat sem einhver hefur mælt með, ég veit að margt af því sem ég hef smakkað af því það var skilið eftir handa okkur á erlendum heimilum hefði mér aldrei dottið í hug að smakka úti í búð eða panta á veitingastöðum.“

Átu kanínu og hákarl á Tenerife

„Við höfum verið svo heppin að hafa oft getað hitt fólkið sem við erum að skipta við og jafnvel verið boðin í mat heim til þeirra eða farið með þeim út að borða. Það hefur verið virkilega skemmtileg upplifun því á þann hátt höfum við fengið góða innsýn í matarvenjur heimamanna. Við vorum til dæmis boðin með á veitingastað með heimamönnum síðast þegar við vorum á Tenerife þar sem við smökkuðum kanínukjöt og hákarl. Þetta var á mjög litlum veitingastað þar sem enginn talaði ensku og engir diskar voru lagðir á borð heldur fengu allir bara skeiðar og gaffla og áttu að borða af fötunum sem maturinn var borinn fram á. Þetta var mjög skemmtileg matarupplifun og maturinn góður.“

Snæfríður segir fólk vera misduglegt en sumir leggi mikið á sig til að taka sem best á móti gestum. Sumir baki og enn aðrir skilji eftir heimagerða rétti sem þarf þá aðeins að hita upp. Einnig fylgir yfirleitt með langur listi yfir góða veitingastaði eða verslanir þar sem góðgæti er að finna á góðu verði. Maður er því ekki bara að spara sér gistinguna heldur einnig að fá ráð beint frá heimamönnum yfir frábærar upplifanir sem ekki finnast í neinum ferðamannahandbókum og það oftast á engu ferðamannaverði.“

Börnin viljug að prófa eitthvað nýtt

„Við hjónin byrjuðum á því að nýta okkur íbúðaskipti einfaldlega til þess að eiga kost á því að geta ferðast en það segir sig sjálft að ef ekki þarf að greiða fyrir gistinguna þá skapast svigrúm fyrir fleiri og lengri ferðalög auk þess sem hægt er að eyða peningunum sem ekki þarf að eyða í gistingu í eitthvað annað skemmtilegt eins og t.d. fleiri ferðir á veitingastaði. Erlendis finnst dætrunum mjög gaman að fara út að borða en það er eins og börn séu líka viljugri að prófa eitthvað nýtt ef það er í boði á veitingastað heldur en heima, það er a.m.k. mín reynsla. Við erum heldur ekkert alltaf að segja þeim hvað þær eru að borða heldur látum þær bara smakka hlutina enda vitum við foreldrarnir heldur oft ekkert hvað við erum að panta á erlendu tungumáli.“

Stærsta máltíðin sú dýrasta

„Við reynum að vera hagsýn á okkar ferðalögum og borðum öll vel heima á morgnana áður en haldið er út í daginn. Ég smyr alltaf nesti fyrir daginn því farareyririnn er fljótur að fara ef alltaf er verið að kaupa eitthvað snakk hér og þar, og því er skynsamlegra fara af stað með eitthvað handa svöngum munnum í bakpokanum. Ég reyni að hafa stærstu máltíð dagsins alltaf þá dýrustu í stað þess að eyða öllum peningunum í ís og kaffihúsaheimsóknir.“

Hægt er að kaupa bókina Íbúðaskipti - minni kostnaður, meiri upplifun hér

Bókin Íbúðaskipti - minni kostnaður, meiri upplifun.
Bókin Íbúðaskipti - minni kostnaður, meiri upplifun.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert