Snargalið eldhús Rachel Ray

Eldhúsið er sérlega fínt enda ekki við öðru að búast.
Eldhúsið er sérlega fínt enda ekki við öðru að búast. mbl.is/Zillow

Sjónvarpsdrottningin Rachel Ray hefur sett sumarbústaðinn sinn á sölu og hann er ekkert slor. Bústaðurinn er staðsettur í Hamptons sem er sumarleyfisstaður hinna ríku og frægu. Matarvefnum lék forvitni á að vita hvernig eldhús heimsfrægur sjónvarpskokkkur er með og þar komum við ekki að tómum kofanum. 

Í ljós kemur að það er ekki nóg fyrir frú Ray að vera með eitt eldhús heldur er hún með tvö. Til að toppa sig í huggulegheitum er hún með arinn í eldhúsinu - bara svona til að keyra upp stemninguna og er síðan með alveg eins arinn inn í stofu sem er alveg við hliðina. 

Pínku galið en hey... kannski er þetta algjörlega málið!

Kofinn kostar litlar 500 milljónir sem er auðvitað bara klink ef þú ert ríkur og frægur. 

Heimild: Zillow

Hér gefur að líta stofuarininn sem er alveg eins og …
Hér gefur að líta stofuarininn sem er alveg eins og arinninn í eldhúsinu. mbl.is/Zillow
Takið eftir því að það er arinn við hliðina á …
Takið eftir því að það er arinn við hliðina á ísskápnum. Algjörlega snargalin hugmynd. mbl.is/Zillow
Hér er aukaeldhúsið en auðvitað er snargalið að vera ekki …
Hér er aukaeldhúsið en auðvitað er snargalið að vera ekki með eitt slíkt. mbl.is/Zillow
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert