Dýrðleg mánudagsbleikja með hunangi

Grinileg og gómsæt uppskrift að hætti Berglindar.
Grinileg og gómsæt uppskrift að hætti Berglindar. mbl.is/Berglind Guðmundsdóttir

Það er fátt meira viðeigandi á mándudegi en dýrðlegur fiskur. Hér erum við með uppskrift að hunangsbleikju með möndluflögum en uppskriftinn kemur úr smiðju Berglindar Guðmunds á Gulur, rauður, grænn og salt

Mælum hiklaust með þessari. 

Hunangsbleikja með möndluflögum
Fyrir 4

  • 800 g bleikja, beinhreinsuð
  • 2 dl hveiti
  • salt og pipar
  • 2 msk smjör
  • 1 msk olía
  • 3-4 msk hunang, fljótandi
  • 100 g möndluflögur

Aðferð:

  1. Hellið hveitinu á disk og veltið bleikjunni upp úr því. Saltið og piprið.
  2. Setjið smjör og olíu á pönnu.
  3. Setjið bleikjuna á pönnuna, roðið snýr niður og steikið við vægan hita.
  4. Hellið hunangi vel yfir bleikjuna og snúið henni við.
  5. Bætið möndluflögunum út á pönnuna og hrærið reglulega í blöndunni svo hunangið brenni ekki við.
  6. Þegar fiskurinn er fulleldaður, takið þá af pönnunni og berið fram t.d. með byggi og salatblöndu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert