Hvíta súkkulaðið sem varð svart

mbl.is/Federico Remondi - Omnom

„Við höfum verið að vinna að uppskrift að hvítu súkkulaði í tilraunaeldhúsinu í töluvert langan tíma. Uppskriftin var klár, pakkningar voru klárar. Við vorum að setja okkur í startholurnar að setja framleiðsluna í gang og gefa súkkulaðið út, en þá héldum við bjór- og súkkulaðipörun með vinum okkar bruggurunum í Ölvisholti og við kynntumst nýju hráefni; brenndu byggi sem er venjulega notað í bruggun á Porter- og Stout-bjór,“ segir Kjartan Gíslason, súkkulaðigerðarmaður og stofnandi Omnom Chocolate, um tilurð nýja súkkulaðisins sem Omnom er að setja á markað um þessar mundir.

„Við nánast snérum við á punktinum því þetta var svo spennandi bragð og hráefni til að vinna með í súkkulaðiuppskrift. Við prófuðum að setja þetta maltaða og brennda bygg í næstu súkkulaðilögun og við vissum strax að okkur langaði að bæta þessu hráefni við uppskriftina.

Þetta nýja bragð breytti hugmynd okkar um hvað súkkulaði er og getur orðið, og bragðið er örugglega bæði sérstakasta og eitt það skemmtilegasta sem við höfum unnið að en með bygginu kemur þessi dásamlegur keimur sem minnir á ristað brauð. Þannig að við stoppuðum útgáfuferlið á stykkinu sem við höfðum verið að vinna að og við tóku nokkrir mánuðir í viðbót í tilraunaeldhúsinu þar sem svarta hvíta súkkulaðið átti hug okkar bróðurpart af heilu ári.

Við ákváðum að halda áfram að prófa okkur áfram með uppskriftina og bættum líka við hraunsalti frá Saltverki og byggi frá Móður Jörð á Vallarnesi. Hraunsaltið gaf súkkulaðinu nauðsynlegt jafnvægi á móti sætunni og viðaraskan í saltinu viðeigandi lit. Íslenska lífræna byggið frá Móður Jörð er frábært og bragðgott hráefni sem hefur verið okkur hugleikið og á teikniborðinu frá upphafi Omnom. Þarna var loksins komin uppskrift þar sem íslenska byggið fékk að blómstra. Við létum poppa byggið fyrir okkur eins og poppkorn og húðuðum það svo með súkkulaðinu og þá fengum við þessa stökku áferð sem okkur finnst svo góð,“ segir Kjartan en athygli vekur að súkkulaðið er nánast svart.

„Á þessum tímapunkti erum við ekki lengur með hvítt súkkulaði í höndunum heldur kolsvart hvítt súkkulaði og dásamlega uppskrift þar sem finna má ríkulegan keim af ristuðu byggi sem minnir á ristað brauð, beiskt kakó og kaffi. Súkkulaðið verður gefið út í maí og heitir Black n' Burnt Barley. Sérstakasta og eitt skemmtilegasta súkkulaðið sem við höfum unnið að,“ segir Kjartan Gíslason, súkkulaðigerðarmaður og stofnandi Omnom Chocolate. „Í þróunarferlinu fór súkkulaðið frá því að vera maltað hvítt súkkulaði yfir í kolsvart súkkulaði úr möltuðu og brenndu byggi; byggi sem venjulega er notað í bruggun á dökkum bjór. Með viðkomu í bruggheiminum fundum við bragð sem hefur algjörlega breytt okkar hugmynd um hvað súkkulaði er og getur orðið.“

Brennt bygg: Vel ristað, maltað bygg frá Þýskalandi, venjulega notað í bruggun á Porter- og Stout-bjór. Byggið ber mikinn og sterkan keim af kaffi, ristuðu brauði og beisku kakói.

Hraunsalt: Hraunsaltið, frá Saltverki á Reykjanesi, gefur súkkulaðinu nauðsynlegt jafnvægi á móti sætunni og viðaraskan viðeigandi lit.

Poppað bygg: Íslenskt lífrænt bygg frá Móður Jörð í Vallarnesi, er poppað eins og poppkorn og húðað með súkkulaðinu, áður en því er sáldrað yfir súkkulaðistykkið.

Bragðeinkenni: Ríkulegur keimur af ristuðu byggi sem minnir á ristað brauð, beiskt kakó og kaffi.

Súkkulaðimeistari Omnom að störfum.
Súkkulaðimeistari Omnom að störfum. mbl.is/Federico Remondi - Omnom
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert