Áhugi ritstjórnar Matarvefsins á eldhúsum er alkunnur og reglulega birtum við fréttir af fallegum eldhúsum.
En endrum og eins rekumst við á eitthvað sem er bara óútskýranlegt. Mögulega (og líklegast) þykja einhverjum þessi eldhús falleg... því þau eru til sölu og hljóta að seljast fyrst að framleiðandinn er í fullu fjöri (eða allavega rekstri) en engu að síður eru þetta bara eldhús sem við getum sammælst um að myndu ekki seljast vel hér á landi.
Eða erum við bara með fullandi fagurfræðilega fordóma og hverjum þykir sinn fugl fagur?
Við leyfum ykkur að dæma...
En heimasíðu söluaðilans er hægt að nálgast hér.