Skælbrosandi í kanilsnúða-sykurvímu

Girnilegir kanilsnúðar.
Girnilegir kanilsnúðar. mbl.is/Lilja Katrín Gunnarsdóttir

Lilja Katrín á Blaka.is er afskaplega flink að baka og það er násta gefið að uppskrift frá henni verður bökuð og svo situr maður í sykurvímu næstu daga á eftir - en skælbrosandi. 

Þessir snúðar eru í miklu uppáhaldi hjá henni og skyldi engan undra. Dásamlega girnilegir og uppskriftin skotheld. 

Snúðar

  • 1 bréf þurrger
  • 1 bolli volg mjólk
  • 4 msk sykur
  • 3 3/4 bolli hveiti
  • 1 tsk salt
  • 2 egg (við stofuhita)
  • 1 tsk vanilludropar
  • 90 g mjúkt smjör

Fylling  

  • 1 pakki Royal-karamellubúðingur (Blandaður og kældur samkvæmt leiðbeiningum á pakka)
  • 3/4 bolli púðursykur
  • 1 egg
  • 2 msk vatn

Aðferð:

Snúðar: Blandið saman þurrgeri, mjólk og sykri saman í skál og leyfið þessu að hvíla í 5-10 mínútur, eða þar til blandan freyðir.

Blandið hveiti og salti vel saman í skál og bætið því næst gerblöndunni, eggjum og vanilludropum saman við. Blandið saman í um 10 mínútur.

Blandið síðan smjörinu saman við og blandið saman í um 5 mínútur. Hnoðið deigið lítið eitt á borðflöt sem er dustaður með hveiti.

Smyrjið smá olíu í skál, setjið deigið í skálina og hyljið með viskastykki.

Leyfið deiginu að hefast á volgum stað í um klukkutíma.

Fylling: Hitið ofninn í 180°C og smyrjið ágætlega stórt eldfast mót eða klæðið ofnplötu með smjörpappír.

Fletjið deigið út og smyrjið búðingnum á það. Ég notaði ekki allan búðinginn, bara sirka 3/4 af blöndunni. Drissið síðan púðursykrinum yfir búðinginn.

Rúllið deiginu út og skerið í snúða, sirka 10 til 12 stykki.

Raðið snúðunum í mótið eða á plötuna, setjið viskastykki yfir þá og leyfið að hefast í 5-10 mínútur í viðbót. Blandið saman eggi og vatni og penslið snúðana með eggjablöndunni.

Bakið snúðana í 35 til 45 mínútur og fylgist vel með þeim.

Leyfið þeim síðan að kólna aðeins áður en þið rífið þá í ykkur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert