Til eru margar leiðir til að tjá aðdáun sína á öðrum en þetta er mögulega ein sú svalasta. Hin stórsnjalla Joy the Baker heldur úti nokkurs konar hliðar-Instagram reikning sem hún kallar Drake on a Cake og inniheldur eingöngu myndir af fögrum kökum með áletrunum úr smiðju meistara Drake.
Þetta er eiginlega með því sniðugra sem sést hefur lengi og við lýsum formlega eftir íslenskum bakara sem kvótar bara íslenska rappara... það gæti alveg trendað!
Instagram: Joy the Baker
Instagram: Drake on a Cake