Von á nýju nammi í verslanir

Hér gefur að líta úrvalið sem væntanlegt er í verslanir.
Hér gefur að líta úrvalið sem væntanlegt er í verslanir. mbl.is/Nói Sírísu

Íslenskir nammigrísir geta farið að búa sig undir sjóðandi heitt sumar því von er á átta nýjum nammitegundum frá Nóa Síríus. Og það sem mesta athygli vekur? Ekki eitt einasta piparsælgæti er á ferð. 

Hins vegar er von á hinu klassíska Kroppi í HM búning, sumarkroppi með suðrænum ávöxtum, eins verður hægt að fá HM súkkulaðibolta fullan af sælgæti og spurningarspili fyrir alla fjölskylduna um HM. 

Aðdáendur kóla-hlaups geta tekið trylling þar sem von er á Kóla Trítlum eru einnig smá sætir, Risa Ópal fær nýja bragðtegund sem inniheldur ávaxtatöflur í þremur litum og

Hnapparnir vinsælu sem hingað til hafa einungis verið fáanlegir í nammibörunum verða nú til í stærri pakkningum og síðast en ekki síst eru Saltkringlurnar væntanlegar aftur en þær hafa verið ófáanlegar síðan 2016 þegar þær seldust upp á einni viku. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert