Grilluð T-bone steik að hætti meistarans

Nú fá einhverjir vatn í munninn.
Nú fá einhverjir vatn í munninn. mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson

Grillsumarið er formlega hafið og hér gefur að líta alvöru djúsí T-bone steik eins og þær gerast bestar. Það er enginn annar en Ragnar Freyr - betur þekktur sem Læknirinn í eldhúsinu sem á þessa uppskrfit en hann tekur grillmennskuna föstum tökum.

Grilluð T-bone steik að hætti meistarans

  • Tvær stórar T-bein nautasteikur
  • góð jómfrúarolía
  • salt og pipar 

Aðferð:

  1. Þetta er lúxusbiti og þarf ást og kærleika kokksins. Ég skar í fituna til að auðvelda henni að eldast.
  2. Penslaði kjötið með góðri jómfrúarolíu. Saltaði ríkulega og pipraði. Blússhitaði kolagrillið og lagði meira að segja einn viðarbita í annan endann til að tryggja háan hita. Grillaði kjötið í nokkrar mínútur á hvorri hlið.
  3. Reyndi að láta bitana standa upp á enda til að reyna að grilla merginn - kenningin er sú að hann þrýstist út í kjötið og gefi aukið umami bragð. Þetta er eitthvað sem ég lærði af ítölskum kokki, Antonio, þegar ég var á ferðalagi um Toskana síðastliðið vor.
  4. Þegar kjarnhiti kjötsins var komið í rúmar 50 gráður kippti ég af grillinu og hvíldi í rúmar fimmtán mínútur.
  5. Ég vil hafa kjötið örlítið rautt að innan. Sumir vilja það meira eldað. Það er bara skera steikina í þunnar sneiðar og bjóða fólki það sem það vill. Verði ykkur að góðu.
Steikin nánast tilbúin.
Steikin nánast tilbúin. mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson
Ragnar vill hafa kjötið sitt vel rautt að innan.
Ragnar vill hafa kjötið sitt vel rautt að innan. mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert