Le Creuset á 50% afslætti

Þessi gullfallegi pottur er á 50% afslætti um helgina.
Þessi gullfallegi pottur er á 50% afslætti um helgina. mbl.is/Le Creuset

Það er Kringlukast nú um helgina og því ekki úr vegi að kanna hvaða tilboð eru í gangi og hvort hægt er að gera góð kaup. 

Hægt er að fá iRobot Roomga 605-ryksugu með 40% afslætti í Byggt og búið.

Svartmatti Le Creuset-potturinn með koparhnúðnum á lokinu er á 50% afslætti í Byggt og búið en við greindum frá því á dögunum að hann væri nýkominn til landsins eftir að hann seldist upp. 

Í Hrím er 20% afsláttur af pottum.

Royal Copenhagen History Mix-skálar og bollasett eru á 40% afslætti í Kúnígúnd og á sama stað má fá Georg Jensen kertastjaka með 30% afslætti og pottasett með 50% afslætti.

Villeroy & Boch-matarstellin Petit Fleur, New Wafe Flow og Rose Cottage eru með 40% afslætti í sömu verslun.

Í Kúnígúnd er jafnframt verið að selja hinn dimmbláa INK pott frá Le Creuset með 50% afslætti auk þess sem pönnur úr sama merki eru á sama afslætti og kosta nú 12.495 í stað 24.995. 

Í Eirbergi er hægt að fá Tregren með 20% afslætti það er snjalltengd gróðrastöð fyrr kryddjurtir og blóm. 

Fyrir þá sem vilja eignast vandaða hnífa er KAI-hnífasett á 25% í Byggt og búið og þar eru einnig griláhöld með 30% afslætti og fjöldi sous vide græja með miklum afslætti. 

Það ættu því allir að geta gert góð kaup í Kringlunni en kastið stendur til 7. maí. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert