„Ég er búinn að vera með Sikiley á heilanum síðan ég var að þvælast þar sumarið 2016. Þar var allt nýtt, ég gisti á sveitabæjum og lærði alls konar í matreiðslu, lærði meðal annars að elda sverðfisk, gera pistasíu og sardínu pestó (sem er viðbjóður BTW) og lærði að meta grænmetispizzur."

Þröstur heldur úti hinu stórskemmtilega matarbloggi Töddi brasar og þar kennir ýmissa bráðsniðugra grasa...

Sikileyjarbaka með pistasíum og chili bearnaise

Í pizzadeig fyrir tvær bökur nota ég:

  • 7 dl steinmalað hveiti
  • Þurrger
  • Sjávarsalt
  • Hvítlaukskrydd…og kannski smá chili
  • 3 msk ólívuolíu
  • 2 msk hunang
  • 250 ml dökkur bjór

Mér finnst geggjað að nota dökkan bjór í staðinn fyrir vatn, það kemur einhver keimur í deigið. Svo má krydda deigið að vild, allt sem er ítalskt finnst mér vera gott gott.

Ég hnoða alveg heilan helling og leyfi svo deiginu að hefa sig í volgu vatni með klút yfir, af því mamma gerir það alltaf.

Á þessa pizzu fer síðan:

  • Chilli og hvítlaukspestó frá Jamie Oliver
  • Pizzaostur
  • Þistilhjörtu (rifin gróft)
  • Grænar ólívur
  • Medjool döðlur
  • Mozzarella kúlur (tættar)
  • Muldar pistasíur

Á toppinn:

  • Rucola
  • Limesafi
  • Meiri muldar pistasíur

Ég keypti þessa forláta hnetumulningsvél í Tiger á 600kr sem virkar bara svona ofsalega vel og er jafnvel pínu falleg.

Það skiptir mig miklu máli að þetta líti fallega út, álegginu sé raðað huggulega á bökurnar og þær kalli á mig.

Bökurnar eru svo bakaðar við 200°C í ca 15 mínútur.

Svo skola ég rucolasalat og dreifi fallega yfir, limesafi er kreistur yfir rucolað…ok ég lýg, safinn er úr brúsa, svo bæti ég á pistasíurnar, aldrei nóg af pistasíum.

Af því að þetta allt er ekki nóg þá gluða ég chili bearnaise yfir og holyguacamole við erum sko að nálgast eitthvað.