Guðdómlega græn eldhús

Það þarf ekki endilega að notast við málningu, hér setja …
Það þarf ekki endilega að notast við málningu, hér setja fallegar dökkgrænar flísar punktinn yfir i-ið. mbl.is/domino.com

Við höfum heyrt að grænn litur sé róandi og tengist friðsæld og kyrrð. Því hlýtur það að vera alveg sérlega slakandi og jafnast á við bestu hugleiðslu að dedúa við matseld í fagurgrænu eldhúsi. Til að sýna hversu skemmtilegur og fjölbreyttur græni liturinn getur verið tókum við saman nokkur eldhús þar sem grænn er ríkjandi. Flestir ættu að geta fundið sér grænan lit við hæfi, hvort sem það eru fölir og frískandi myntugrænir tónar eða dökkur og djúpur smaragðsgrænn sem fær fólk til að kikna í hnjánum.

Það er bráðsniðugt að para saman tvö mismunandi græn litbrigði.
Það er bráðsniðugt að para saman tvö mismunandi græn litbrigði. mbl.is/pinterest
Hvíta stellið nýtur sín í dökkum skógargrænum eldhúshillum.
Hvíta stellið nýtur sín í dökkum skógargrænum eldhúshillum. mbl.is/designsponge.com
Þessar myntugrænu innréttingar koma sérstaklega vel út með bronslituðum höldum …
Þessar myntugrænu innréttingar koma sérstaklega vel út með bronslituðum höldum og blöndunartækjum. mbl.is/mydomaine.com
Hér sjáum við aftur tvo ólíka græna liti sem kallast …
Hér sjáum við aftur tvo ólíka græna liti sem kallast skemmtilega á. mbl.is/klikk.com
Grænt og gyllt er blanda sem gleður augað.
Grænt og gyllt er blanda sem gleður augað. mbl.is/pinterest
Þessar flísar, grænar eins og þrastaregg, setja gamaldags og fallegan …
Þessar flísar, grænar eins og þrastaregg, setja gamaldags og fallegan svip á eldhúsið. mbl.is/pinterest.com
Mattur dökkgrænn litur fer einstaklega vel með hráum við.
Mattur dökkgrænn litur fer einstaklega vel með hráum við. mbl.is/swooneditions.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert