Eftirrétturinn sem er betri en allt

Þetta er einn af þessum réttum sem geta ekki klikkað.
Þetta er einn af þessum réttum sem geta ekki klikkað. mbl.is/Berglind Guðmundsdóttir

Ef að Berglind Guðmunds segir það þá hlýtur það að vera satt. Við tökum hana allavega trúanlega og ætlum að skella í þessa elsku fyrir kvöldið.

Við ráðleggjum ykkur að gera slíkt hið sama enda getur þessi eftirréttur ekki klikkað.

Gulur, rauður, grænn og salt.

Betri en allt eftirrétturinn

  • 3 dl hveiti
  • 3 dl smjör, mjúkt
  • 3 dl pekanhnetur, saxaðar
  • 230 g rjómaostur
  • 2 1/2 dl flórsykur
  • 500 g sýrður rjómi, t.d. 18% frá Mjólku
  • 2 pakkar súkkulaðibúðingur
  • 1 l mjólk

Aðferð:

  1. Hnoðið hveiti og smjör saman og bætið söxuðum pekanhnetum saman við (geymið smá til að setja ofaná). Bakið í 175°c heitum ofni í 20 mínútur. Takið úr ofni og kælið.
  2. Hrærið rjómaosti og flórsykri saman og bætið 300 g af sýrðum rjóma saman við. Setjið rjómaostablönduna yfir pekanhnetubotninn.
  3. Blandið mjólkinni saman við búðinginn látið standa aðeins og setjið síðan yfir rjómaostablönduna.
  4. Setjið afganginn af sýrða rjómanum yfir allt og stráið söxuðum hnetum og súkkulaði yfir. Setjið í kæli og geymið þar til hann er borinn fram. Þennan rétt er frábært að gera deginum áður og geyma í kæli yfir nótt.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert