Partý-camembert sem slær í gegn

mbl.is/Linda Björg Björnsdóttir

Linda Björg Björnsdóttir er frekar flink þegar kemur að eldamennsku eins og aðdáendur The Gastro Truck vita. Við rákum hins vegar augun í þennan sjúklega lekkera partýrétt sem við fengum uppskriftina að.

Hér gefur að líta camembert með alls konar gúmmelaði sem ætti ekki að klikka. Tekur kannski 4 mínútur að undirbúa og volá! Njótið vel. 

Partý-camembert sem slær í gegn

  • 1 camembert
  • 1 hvítlauksrif
  • smá hvítvín ef til er – annars ólífuolía
  • agave-hunang
  • rúsínur og hnetur

Aðferð: 

  1. Stingið nokkur göt á ostinn með gaffli. 
  2. Stingið hvítlauksrifinu í miðjuna. 
  3. Setjið ólífuolíuna eða hvítvínið yfir.
  4. Hellið slatta af agave-hunanginu á ostinn og sáldrið rúsínu- og hnetublöndunni yfir. 
  5. Setjið inn í ofn og bakið þar til osturinn er orðinn mjúkur í gegn. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert