Svona líta Vegamót út eftir breytingarnar

Guðmundur Finnbogason, einn eigenda Bastard Brew & Food.
Guðmundur Finnbogason, einn eigenda Bastard Brew & Food. Haraldur Jónasson/Hari

Það varð mörgum tölvert áfall þegar fregnir bárust af því í fyrra að Vegamót hefðu lokað. Sá skemmtilegi staður hafði verið hluti af veitinga- og skemmtanalífi borgarinnar í árafjöld og því mikill missir. Tilurð lokunarinnar var þó nokkuð tregablandin en hana mátti rekja til framkvæmda við nærliggjandi hótel sem hafði í för með sér lokun á Vegamótastíg og verulega takmörkun á útisvæði þar sem eitt stykki byggingarkrani var búinn að koma sér haganlega fyrir.

Eigendur staðarins, þeir Óli Már Ólason, Andri Björn Björnsson og Guðmundur Finnbogason ákváðu þá að grípa tækifærið og láta langþráðan draum um að opna bruggsmiðju rætast. „Úr því að staðan var svona var alveg eins gott að nýta tímann meðan mestu framkvæmdirnar stæðu yfir til að leggjast í framkvæmdir sjálfir,“ segir Óli í samtali við Matarvefinn. „Okkur hafði lengi dreymt um bruggsmiðju og við létum slag standa. Við náum vonandi að opna í dag,“ bætir hann við, en ljóst er að unnendur góðs bjórs og frábærs matar eiga gott í vændum.

Staðurinn heitir Bastard Bres & Food og öll hönnun er hin glæsilegasta. Mikið er lagt upp úr að gestir geti setið þægilega og dansgólfið heyrir sögunni til.

„Eldhúsið er opið frá 11.30 til 22.00 alla daga. Á matseðlinum er boðið upp á rétti eins og stökk “flatbread” í ýmsum útfærslum, smá-taco, hamborgara, Louisiana-kjúkling, osta- og kjötskurðarplatta og fleira. Eins verður hægt að fá brunch og fisk dagsins fyrri hluta dags,“ segir Óli, spurður um matseldina og bætir því við að staðurinn muni opna í dag (17/5) klukkan 16. 

Eigin bjór og craft-kokteilar

„Við erum nú með tvo bjóra sem við ætlum að byrja að keyra á, ásamt á annan tug bjóra frá öðrum brugghúsum og góðu úrvali af bjór á flöskum. Einnig verðum við með metnaðarfulla craft-kokteila á boðstólnum þar sem meðal annars er búið að gera stílfæringu á drykkjum eins og Moscow Mule og Aperol Spritz. Mikið úrval er af hinum ýmsu romm-, viskí- og gintegundum ásamt fjölda af mismunandi stílum af tonic og ævintýralegum gin og tonic pörunum,“ segir Ólafur um úrvalið á barnum og bætir því við að tónlistin verði lífleg og þægileg þar sem komi saman rokk, soul, fönk og diskó. Plötusnúðar muni síðan mæta á svæðið um helgar og halda uppi stuðinu fram á nótt.

Barinn er hinn glæsilegasti.
Barinn er hinn glæsilegasti. Haraldur Jónasson/Hari
Breytingarnar eru skemmtilegar og koma vel út.
Breytingarnar eru skemmtilegar og koma vel út. Haraldur Jónasson/Hari
Veitingastaðurinn Vegamót eftir umfangsmiklar breytingar.
Veitingastaðurinn Vegamót eftir umfangsmiklar breytingar. Haraldur Jónasson/Hari
Glæsilegar brugggræjur.
Glæsilegar brugggræjur. Haraldur Jónasson/Hari
Mikið hefur verið lagt upp úr því að staðurinn sé …
Mikið hefur verið lagt upp úr því að staðurinn sé hlýlegur og stemmningin eftir því. Haraldur Jónasson/Hari
Bullandi karakter.
Bullandi karakter. Haraldur Jónasson/Hari
Bruggbúnaðurinn er lokaður af með þessum eitursvölu hurðum.
Bruggbúnaðurinn er lokaður af með þessum eitursvölu hurðum. Haraldur Jónasson/Hari
Brugg-græjurnar eru mikið augnayndi.
Brugg-græjurnar eru mikið augnayndi. Haraldur Jónasson/Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert