Eftirlæti forstjórans

Þessi tímamótaréttur þótti svo vandaður að hann varð í öðru sæti í verðlaunasamkeppninni Bestu uppskriftirnar 1989 sem að Osta- og smjörsalan stóð fyrir. 

Höfundur uppskriftar er Jenetta Bárðardóttir og við leyfum okkur að fullyrða að við erum fáránlega spennt fyrir þessum rétti. 

Ef einhver man eftir honum eða hefur lagað hann á undanförnum aldarfjórðunigi þá er sá hinn sami hvattur til að setja sig í samband við okkur á matur@mbl.is.

Af hverju hann heitir Eftirlæti forstjórnans skal ósagt látið og líklegast myndi maður skipta út létt og laggott í dag fyrir alvöru smjör. Hvað kakólíkjörinn varðar þá orkar hann tvímælis - að minnsta kosti við fyrsta lestur en kannski er þetta algjör negla. 

Eftirlæti forstjórans

Fyrir sex

  • 6 pönnukökur
  • 1 camembert
  • 50 g létt og laggott
  • 2 1/2 dl rjómi
  • 1 1/2 dl Créme de Cacao
  • rifsberja- eða bláberjasulta

Aðferð:

  1. Skerið camembert-ostinn í 6 bita.
  2. Setjið 1 ostbita og 1 tsk af sultu á hverja pönnuköku. Brjótið pönnukökurnar saman 
  3. Hitið létt og laggott, rjóma og líkkjör saman á pönnu, setjið pönnukökurnar út á og látið þær liggja í heitum leginum (við vægan hita) í um það bil 7 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður. 
  4. Berið fram með papriku eða vínberjum. 
  5. Þessi smáréttur er einnig kjörinn sem ábætisréttur eftir létta máltíð. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert