Svona leit brúðartertan út

Kakan er sérlega glæsileg.
Kakan er sérlega glæsileg. Ljósmynd: Kensington palace / Instagram

Það var vitað að kakan yrði meistarastykki en Kensington höll hefur birt mynd af kökunni og hún er hreint stórbrotin. Það var Claire Ptak hjá Violet bakaríinu í London sem hannaði og bakaði kökuna og tók baksturinn dágóða stund. 

Alls var hennar fólk að störfum við bakstur og samsetningu kökunnar í sex daga. Í hana fóru yfir 200 sítrónur og kremið var með ylliberjabragði úr berjum sem komu af landareign drottningar í Sandringham. 

Bakarinn Claire Ptak sést hér skreyta kökuna.
Bakarinn Claire Ptak sést hér skreyta kökuna. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert