Nettröll ráðast á Nigellu

Nigella Lawson.
Nigella Lawson. mbl.is/Facebook

Nú fýkur í marga og ekki að ósekju því hin elskaða eldhúsgyðja, Nigella Lawson, glímir nú við leiðinda nettröll sem hafa tekið ummæli hennar og snúið þeim upp í tóma vitleysu sér til skemmtunnar. 

Sagan hefst á því að Nigella var að kynna nýjustu bók sína, At my table, og fékk spurningu frá diggum aðdáanda. Nigella svarar spurningunni með því að segja „I love cumin“ - sem útleggst á okkar ylhýra tungumáli að hún sér sérlega hrifin af cumin kryddi.

Því miður er hægt að snúa þessu orði á marga vegu og eru netheimar logandi af misfyndnum tröllum sem eru búin að snúa þessu á alla mögulega kanta. 

Nigella reyndi sjálf að kæfa þetta í fæðingu en það var til einskis. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert