Vandræðalega góðar núðlur

Bragðmikið og skemmtilegt salat.
Bragðmikið og skemmtilegt salat. Ljósmynd: Food52/James Ransom

Þessar núðlur eru merkilega góðar enda er það kunnara en frá þurfi að segja að allt sem inniheldur fiskisósu er frábært. Bragðið er margslungið og í alla staði akkúrat það sem maður þarf í kroppinn. 

Víetnamskt hrísgrjónanúðlusalat 

Hæfilegt fyrir tvo til fjóra 

Dressing 

  • 3 msk. fiskisósa 
  • 3 msk. nýkreistur limesafi 
  • 2-3 msk. ljós púðursykur 
  • 6-8 msk. vatn 
  • 1 meðalstórt hvítlauksrif, marið 
  • 1 chili, marið (Thai chili ef fáanlegt) 

 Salatið 

  • 240 g hrísgrjónanúðlur 
  • 3-4 kínakálsblöð, sneidd í fínlegar ræmur 
  • 1 meðstór gulrót, skorin í ræmur 
  • ½ agúrka, skorin í bita og fræin fjarlægð  
  • handfylli af söxuðum ferskum kryddjurtum, t.d. basilíku, kóríander og myntu 
  • 240 g eldað kjöt eða rækjur, skorið í hæfilega stóra bita 
  • ½ bolli muldar salthnetur 

AÐFERÐ:

Setjið öll hráefni sem eiga að fara í dressinguna í skál og pískið vel. Ef bragðið er of sterkt má bæta út í vatni, einni tsk. í einu, og meiri sykri ef hún er ekki nógu sæt. Munið að sósan á að fara yfir ókryddað salat svo hún má vera nokkuð sterk. Hellið í skál eða krús (ath. sósan getur geymst allt að viku). 

Sjóðið núðlurnar í 4-5 mínútur eða þar til þær eru mjúkar en ekki grautlinar. Hellið þeim yfir salatblöðin og skolið hvort tveggja með köldu vatni. Látið þorna á hreinum klút. 

Skiptið salatinu og núðlunum í tvær eða þrjár hæfilega stórar skálar, dreifið grænmetinu, kryddjurtunum og kjötinu eða rækjunum yfir og stráið salthnetunum á toppinn. Leyfið hverjum og einum að skammta sér dressingu að vild. (Að sjálfsögðu má einnig bera þennan rétt fram í einni stórri skál, þá fær hver og einn sér í sína skál). 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert