Vitamix á 25% afslætti í Costco

Hinn glæsilegi Vitamix blandari sem margir þrá að eignast.
Hinn glæsilegi Vitamix blandari sem margir þrá að eignast.

Góð tilboð eru gulli betri og útsendari Matarvefsins rakst á þetta dúndur tilboð á Vitamix blandara. Að sögn heimildarmanna gildir tilboðið um helgina og er í tilefni eins árs afmælis verslunarinnar. 

Vitamix blandarar eru eins og alþjóð veit mögulega bestu blandarar í heimi enda þola þeir nánast allt og geta mulið grjót og hitað súpu nánast á sama tíma. 

Vitamix er jafnframt fjárfesting enda kosta þeir skildingin. Það eru því alltaf gleðifréttir þegar hægt er að gera góð kaup eins og núna um helgina en blandarinn kostar 74.900 krónur á tilboði en kostar fullu verði um 100 þúsund krónur. 

Nóg var af blöndurum.
Nóg var af blöndurum. mbl.is/
Ási í Kælitækni var mættur til að kenna réttu handtökin.
Ási í Kælitækni var mættur til að kenna réttu handtökin. mbl.is/
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert