Fáránlega góður kjúklingur á 15 mínútum

Sérlega girnilegt.
Sérlega girnilegt. mbl.is/Berglind Guðmundsdóttir

Þessi kjúklingaréttur fær fullt hús stiga frá Berglindi Guðmunds á Gulur, rauður, grænn og salt en hann kemur einmitt úr smiðju hennar. Berglind segir hann bæði fljótlegan og sérlega bragðgóðan sem er um það bil allt sem við viljum fá út úr góðri máltíð.

Kjúklingur í kasjúhnetusósu

Fyrir 4

  • 150 g kasjúhnetur, ósaltaðar
  • 1 laukur
  • 1 rauð paprika
  • 1 brokkolí
  • 4 kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry Sósa
  • 2 hvítlauksrif, pressuð
  • 1.5 msk hrísgrjónaedik
  • 1.5 msk fiskisósa, t.d. Fish sauce frá Blue dragon
  • 3 msk sojasósa
  • 3 msk hoisinsósa
  • 0.5 dl ostrusósa
  • 2 tsk malað engifer (engiferkrydd)
  • chilíkrydd, magn að eigin smekk

AÐFERÐ:

  1. Hrærið öllum hráefnunum fyrir sósuna saman.
  2. Ristið hneturnar á þurri pönnu og hrærið reglulega svo þær brenni ekki. Takið af pönnunni og geymið.
  3. Skerið laukinn í skífur, saxið paprikuna og skerið brokkolíið í bita.
  4. Skerið kjúklingabringurnar í litla bita og setjið á pönnuna ásamt smá olíu og steikið í nokkrar mínútur eða þar til kjúklingurinn hefur brúnast.
  5. Bætið grænmetinu þá saman við og steikið áfram. Bætið hnetunum saman við og að lokum sósunni og látið aðeins malla við vægan hita.
  6. Bætið við chilíkryddi ef áhugi er á því.
Fljótlegur og góður kjúklingaréttur frá Berglindi Guðmunds.
Fljótlegur og góður kjúklingaréttur frá Berglindi Guðmunds. mbl.is/Berglind Guðmundsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert