Forsetafrúin afhenti verðlaunin: Harðfisksúpan sigraði

Sveinn Thorarensen fékk viðurkenningu fyrir svínasíðu og humar í pönnuköku.
Sveinn Thorarensen fékk viðurkenningu fyrir svínasíðu og humar í pönnuköku. mbl.is/Valgardur Gíslason

Hin stórsnjalla keppni „Þjóðlegir réttir á okkar veg“ hefur verið til lykta leidd en það var forsetafrú Íslands, Elisa Reid sem afhenti verðlaunin á uppskeruhátíð Matarauðs Íslands.

Alls bárust 107 hugmyndir eða uppskiftir í keppnina og var þáttaka langtum meiri en bjartsýnustu menn höfðu vonað. Valdar voru 15 uppskriftir sem að nemar og meistarar við Hótel- og matvælaskólann úrfærðu og matreiddu fyrir dómnefnd. 

Bæði Íslendingar og útlendingar sendu inn hugmyndir og uppskriftir að þjóðlegum réttum og kenndi þar ýmissa grasa; allt frá njólasúpu, grasystingi og grjúpáni í skemmtilega útfærða samtímarétti.

Gaman að segja frá því að fleiri karlmenn sendu inn hugmyndir en konur. Algengustu hugmyndirnar án uppskriftar voru kótilettur í raspi, plokkfiskur og svo komu líka hugmyndir að lúxuspylsum ýmist með fiski eða kjöti.

Vinningshafar voru samkvæmt dómnefnd:

  • 1. sæti Harðfisksúpa. Baldur Garðarsson
  • 2. sæti Íslenskt ramen, rófunúðlukjötsúpa. Hafliði Sævarsson
  • 3. sæti Brauðsúpa. Anna Lára Pálsdóttir
  • 4. sæti Rófugrautur. Helga Jóna Þorkelsdóttir
  • 5. sæti Nesti smaladrengsins. Hafsteinn Hjartarson

Vinsælasti rétturinn samkvæmt netkosningu var: Fjallagrasa brulee eftir Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur

Vinningar voru ekki af verri endanum stútfullar gjafakörfur af matvörum frá Beint frá býli, Mjólkursamsölunni og flugmiði frá Air Iceland Connect fyrir fyrsta sætið.

Uppskriftirnar eru aðgengilegar HÉR.

Björg Eiríksdóttir fékk viðurkenningu fyrir plokkfiskrétt sem varð að plokkpylsu.
Björg Eiríksdóttir fékk viðurkenningu fyrir plokkfiskrétt sem varð að plokkpylsu. mbl.is/Valgardur Gíslason
Hafsteinn Hjartarson hér með verðlaun fyrir nesti smaladrengsins.
Hafsteinn Hjartarson hér með verðlaun fyrir nesti smaladrengsins. mbl.is/Valgardur Gíslason
Sonur Hafliða Sævarssonar, Ýmir, tók á móti viðurkenningu fyrir hönd …
Sonur Hafliða Sævarssonar, Ýmir, tók á móti viðurkenningu fyrir hönd föður síns, sem lenti í 2. sæti með íslenskt ramen. mbl.is/Valgardur Gíslason
Elisa Reid forsetafrú hér ásamt þeim Sigurði Daða Friðrikssyni og …
Elisa Reid forsetafrú hér ásamt þeim Sigurði Daða Friðrikssyni og Hermanni Þór Marinóssyni frá Hótel- og matvælaskólanum og Brynju Laxdal, verkefnastjóra Matarauðs Íslands. mbl.is/Valgardur Gíslason
Elisa Reid forsetafrú gæðir sér á þjóðlegum réttum.
Elisa Reid forsetafrú gæðir sér á þjóðlegum réttum. mbl.is/Valgardur Gíslason
Búi Bjarmar Aðalsteinsson var í dómnefnd. Grímur Ólafsson hjá matvælastofnun …
Búi Bjarmar Aðalsteinsson var í dómnefnd. Grímur Ólafsson hjá matvælastofnun og Þór Sigfússon Sjávarklasanum. mbl.is/Valgardur Gíslason
mbl.is/Valgardur Gíslason
mbl.is/Valgardur Gíslason
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert