Nú getur þú fengið morgunverð á Tiffany's

Ef einhver er á leið til New York er ekki …
Ef einhver er á leið til New York er ekki seinna vænna en að líta við á Blue Box Café. mbl.is/tiffany.com

Tiffany's-verslunin á 727 Fifth Avenue í New York opnaði fyrir stuttu The Blue Box Café, veitingastað og kaffihús uppi á fjórðu hæð í skartgripaversluninni frægu. Margir muna eflaust eftir hinu íkoníska atriði í kvikmyndinni Breakfast at Tiffany's þegar Audrey Hepburn, í hlutverki Holly Golightly, mænir löngunaraugum inn um búðargluggann á skartgripaversluninni frægu, með smjördeigshorn í annarri og kaffimál í hinni.

Nú geta fínu frúrnar setið uppi á fjórðu hæð með rándýran kaffibolla og horft niður á smælingjana í Central Park-garðinum. Kaffihúsið er þó í dýrara lagi, eins og við var kannski að búast, en kaffibolli og smjördeigshorn kostar 29 dollara. Það er þó boðið upp á aðeins fleira en kaffi og croissant, hægt er að fá ristað brauð með lárperu, egg með trufflusvepp eða beyglu með reyktum laxi. Einnig er boðið upp á kökur sem eru í laginu eins og Tiffany's skartgripaaskja, hjúpaðar blágrænu kremi með hvítri slaufu úr sykurmassa. 

Ásamt því að sötra kaffi á fjórðu hæðinni er þar einnig hægt að kaupa fallega Tiffany's-muni fyrir heimilið eins og borðbúnað og annað smálegt. Hæðin er nýtekin í gegn, en þunglamalegir viðarpanelar og dökkur marmari, sem kominn var til ára sinna, fékk að víkja fyrir ljósum marmara og hvítum veggjum. Kaffihúsið er svo auðvitað skreytt í hinum sögufræga blágræna þemalit Tiffany's. Ef einhver er á leið til New York er ekki seinna vænna en að líta við á The Blue Box Café, sökkva þar ofan í sægræna flauelsstóla og maula kökur í laginu eins og Tiffany's-skartgripaöskjur. Hægt er að panta borð hér.

Kaffihúsið Blue Box Café er skreytt í hinum sögufræga blágræna …
Kaffihúsið Blue Box Café er skreytt í hinum sögufræga blágræna þemalit Tiffany's. mbl.is/Tiffany.com
Ásamt því að sötra kaffi á fjórðu hæðinni er þar …
Ásamt því að sötra kaffi á fjórðu hæðinni er þar einnig hægt að kaupa fallega Tiffany's-muni fyrir heimilið eins og borðbúnað. mbl.is/tiffany.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert