Fyrsti „götubita“ staðurinn á Íslandi, Grandi mathöll, opnar fyrir gesti og gangandi helgina 1.-3. júní samhliða Hátíð hafsins. Grandi mathöll er staðsett við höfnina úti á Granda í gamalli fiskmarkaðsskemmu. Níu veitingabásar eða -vagnar bjóða upp á frumlega rétti með áherslu á íslenskt hráefni. Þá bjóða þeir einnig upp á íslenskt grænmeti og brauð, ásamt kaffi, bjór og víni. Nálægðin við sjóinn er einstök og alveg eins víst að gestir upplifi löndun á fiski – fiski sem gæti endað á diskum gesta. Þá verða seldar vörur matarfrumkvöðla sem hafa aðsetur á efri hæð skemmunnar í Húsi sjávarklasans. Grandi mathöll verður opin allan ársins hring.
Fyrirmyndina að Granda mathöll má meðal annars rekja til Copenhagen Street Food á Papirsöen í Kaupmannahöfn. Götubitastaðir eiga sér langa sögu í alþjóðlegri matarmenningu. Fyrstu götubitastaðirnir sem sögur fara af buðu Forngrikkjum upp á steiktan fisk og þeir voru lengi vinsælir á meðal fátækra fjölskyldna. Þetta hefur breyst í tímans rás og nú eru slíkir staðir vinsælir um allan heim. Einkenni götubitastaða nútímans eru að þeir bjóða ýmsa smárétti á viðráðanlegu verði og eru oft í eigu fjölskyldna eða einstaklinga sem sjálf vinna við matargerðina.
Auglýst var eftir umsækjendum um aðstöðu í Granda mathöll síðasta haust og sóttu nálægt 100 aðilar um að fá pláss. Þær umsóknir sem fengu brautargengi endurspegla vel bæði alþjóðlega og innlenda strauma í matargerð og lögð er áhersla á gæði og fjölbreytni. Staðirnir sem verða í Granda mathöll eru Fjárhúsið, Fusion Fish & Chips, KORE, Lax, Micro Roast Vínbar, Rabbarbarinn, The Gastro Truck, Víetnam og Pop-Up.
Upplifunin á Granda mathöll verður ekki einskorðuð við mat og drykk því litríkt umhverfið, þar sem hver bás hefur sinn stíl, í návígi við einstakt hafnarútsýnið á að búa til skemmtilega karnival stemmningu við höfnina. Stefnt er að því að hafa reglulega viðburði í Granda mathöll sem tengjast tónlist og mat.
STAÐIRNIR SEM ERU Á GRANDA MATHÖLL:
FJÁRHÚSIÐ
FUSION FISH & CHIPS
KORE
LAX
MICRO ROAST VÍNBAR
POP - UP VAGN
RABBAR BARINN
THE GASTRO TRUCK
VÍETNAM