Ofureinfaldur pina colada-drykkur

Sérlega svalandi sumardrykkur.
Sérlega svalandi sumardrykkur. Ljósmynd: Gunnar Konráðsson
Það er fátt meira frískandi en góður drykkur. Hér gefur að líta óáfenga útgáfu af þessum heimsfræga drykk sem allir ættu að geta notið. Fullorðins útgáfan er svo auðvitað alltaf í boði líka en þá er notast við romm og Malibu en við mælum klárlega með þessum drykk á næsta góðviðrisdegi. Ekki spillir fyrir ef blandarinn er nægilega öflugur til að mylja klakann með. 
Ofureinfaldur pina colada-drykkur
  • ½ l ananassafi
  • ½ l kókosmjólk
  • mulinn ís

Allt sett í blandara. Borið fram í háu glasi og skreytt með ananassneið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert