Morgunverðar smoothie sem bjargar deginum

mbl.is/Maria Gomez

Það er nauðsynlegt að byrja daginn á einhverju sem er bæði bráhollt og fáránlega gott... eins og þessi dásemdar smoothie sem er líka svo fallegur að það gæti dugað að horfa á hann til að líða betur. 

Það er Maria Gomez á Paz.is sem á heiðurinn að þessari snilld. 

Morgunverðar smoothie sem bjargar deginum

Uppskriftin miðast við einn, tvöfaldið eða þrefaldið ef þið viljið hafa fyrir 2 eða fleiri.

  • Frosin bláber
  • Sykurlausa möndlumjólk (fæst í Bónus)
  • 1 msk fræblönduna góðu
  • 2 tsk hörfræolía
  • 1-2 msk frutein duftið með acai bragði
  • 1 msk chiafræ
  • 1 msk hlynsíróp lífrænt (fæst í Bónus)
  • Stundum set ég 1 msk lífrænt hnetusmjör en ekki alltaf

Ofan á:

  • Goji ber
  • Banana
  • Kakónibbur
  • Hampfræ
  • Pekanhnetur

Aðferð:

  1. Ég nota alltaf Ninja blandara með minna glasinu í verkið, en það er samskonar blandari og Nutribullet blandari. Ég set eins og hálft glasið af bláberjunum og helli svo möndlumjólkinni yfir jafn hátt og bláberin ná.
  2. Svo er restinni af innihaldsefnunum bætt út í og blandað í blandaranum þar til það er orðið silkimjúkt og kekkjalaust.
  3. Þá helli ég því í fallega skál og toppa með ofantöldu, en magnið fer alveg eftir smekk. Ég reyni að hafa það svona eins og það lítur út á myndunum hjá mér.
mbl.is/Maria Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert