Ruby súkkulaðið væntanlegt til Íslands

Silja Mist Sigurkarlsdóttir, markaðsstjóri Nóa Síríus.
Silja Mist Sigurkarlsdóttir, markaðsstjóri Nóa Síríus. Kristinn Magnússon

Þau stórtíðindi hafa nú fengist staðfest að Nói Síríus verði þriðji framleiðandinn á heimsvísu sem fær að framleiða það sem kallað hefur verið fjórða súkkulaðið. Um er að ræða bleikt súkkulaði úr kakóbaun sem svissneski súkkulaðiframleiðandinn Barry Callebaut hefur eytt undanförnum þrettán árum í að þróa.

Súkkulaðið er 100% náttúrulegt og hafa súkkulaðiunnendur um allan heim beðið með öndina í hálsinum af eftirvæntingu frá því að tilkynnt var um þetta nýja súkkulaði fyrr á þessu ári. Síðan þá hefur súkkulaðið verið sett á markað í Japan og Suður-Kóreu sem bleikt KitKat og í Bretlandi kom súkkulaðið á markað í maí.

Silja Mist Sigurkarlsdóttir, markaðsstjóri Nóa Síríus, hefur loks staðfest orðróm um að súkkulaðið sé í reynd á leiðinni hingað til lands, en hún segir að fréttirnar af því að þau hafi verið handvalin af Barry Callebaut vera gríðarlega viðurkenningu fyrir fyrirtækið.

„Við áttum von á bauninni árið 2019, þegar stendur til að setja hana í almenna sölu, þannig að við vorum alls óundirbúin þegar fulltrúar frá fyrirtækinu komu hingað til lands til að tilkynna okkur að við hefðum verið valin,“ segir Silja og viðurkennir að mikill handagangur hafi verið í öskjunni síðan tíðindin bárust.

„Það má eiginlega segja að það sé allt búið að vera á hliðinni og við nánast ekki búin að sofa. En að öllu gamni slepptu voru þetta óvæntar fréttir og mikill heiður fyrir fyrirtækið og segir mikið um það traust sem Barry Callebaut ber til Nóa Síríus,“ segir Silja um viðbrögð þeirra við tíðindunum.

Mun heita Rúbín

„Það hefur alltaf verið mikið og gott samstarf milli fyrirtækjanna, en við kaupum allar okkar baunir af þeim. Ég veit að þeir eru mjög hrifnir af vörunum okkar og það er vissulega mikil traustsyfirlýsing að þeir skuli treysta okkur fyrir því að vera einn af fyrstu framleiðendum í heiminum til að framleiða súkkulaði úr bauninni. Það er okkur mikils virði og við erum virkilega stolt. Hér hefur fólk verið vakið og sofið yfir því hvernig við gerum bauninni sem best skil og framleiðum frábært súkkulaði úr henni. Við erum búin að fara yfir víðan völl, en súkkulaðið verður kallað Rúbín súkkulaði á íslensku sem er bein þýðing á enska heitinu Ruby.

Í raun má segja að þetta sé jafn mikilvægt fyrir Barry Callebaut eins og okkur því þeir eru að setja vöruna á markað núna til sérvalinna fyrirtækja í mjög svo takmörkuðu magni. Hvert fyrirtæki hefur svo sína vöruþróun en Nestlé, sem var fyrsta fyrirtækið sem setti Ruby-súkkulaðið á markað, kaus að gera það í gegnum KitKat-vörumerkið, sem er skilgreint sem munaðarvara í Asíu. Þar hefur súkkulaðið fengið frábærar viðtökur og við eigum von á því að íslenskir súkkulaðiunnendur eigi eftir að taka þessari nýjung vel enda ekki annað hægt,“ segir Silja og bætir við að það sé bæði svo bragðgott og fallegt.

Sérstaða Íslands mikil

„Sérstaða okkar hér á landi er hversu hratt við getum brugðist við og það sem tæki mögulega marga mánuði eða jafnvel ár að þróa víða annars staðar í heiminum er hægt að framkvæma á mun skemmri tíma hér á landi. Þetta vita þeir og hafa ávallt verið hrifin af vöruþróuninni okkar enda er ég mjög stolt af okkar framúrskarandi vöruþróunarteymi sem ég stýri.“

Spurð hvenær íslenskir súkkulaðiunnendur geti átt von á súkkulaðinu í verslun segir Silja að það liggi ekki alveg ljóst fyrir. „Við stefnum að því að það verði í sumar. Ég get því miður ekki gefið nánari tímasetningar að svo stöddu en súkkulaðið mun koma í valdar verslanir í takmörkuðu magni.“

Nói Síríus er þriðji framleiðandinn í heiminum sem fær að …
Nói Síríus er þriðji framleiðandinn í heiminum sem fær að framleiða fjórða súkkulaðið. mbl.is/Barry Callebaut
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert