Mandi opnar aftur í dag

Afskaplega huggulegt.
Afskaplega huggulegt. mbl.is/Facebook

Einn vinsælasti matsölustaður landsins opnar á ný eftir töluverða andlitslyftingu en staðnum var lokað í byrjun maí og hafa margir borið sig illa síðan þá. 

Hins vegar geta þeir hinir sömu tekið gleði sína á ný því að Mandi opnar í hádeginu í dag, 16. júní og er ekki annað að sjá en að breytingarnar séu vel heppnaðar miðað við þessa einu mynd sem við höfum undir höndum. 

p.s. fyrir þá sem eru ekki með það á hreinu er Mandi sýrlenskur veitingastaður í Veltusundi í Reykjavík og á sér gríðarlega digga aðdáendur sem halda mikilli tryggð við staðinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert