Óhugnalegur brúðarvöndur eða algjör snilld?

Búið er að snúa deigið upp í rósir og dúlla …
Búið er að snúa deigið upp í rósir og dúlla við, svo úr verður laglegur vöndur. mbl.is/foodiggity

Pizza-unnendur geta nú hoppað hæð sína af gleði, og sérstaklega þeir sem ætla að gifta sig í sumar. Það er nefnilega búið að gera brúðarvönd úr pizzu. Það er veitingastaðurinn Villa Italia Kitchen í New York sem stendur að baki þessum ilmandi brúðarvendi, en hann er búinn til úr deigi, pepperoni, bráðnum osti og í raun öllu sem venjuleg pizza er gerð úr. Spurning er hvort hægt sé að fá pizzugerðamenn á Íslandi til að leika þetta eftir? Búið er að snúa deigið upp í rósir og dúlla við, svo úr verður laglegur vöndur. Einnig er boðið upp á litla pizza-skreytingu til að stinga í jakkaföt brúðgumans svo allt verði nú í stíl. Flest er nú til.

Það er spurning hvort einhver íslensk brúðhjón hafi áhuga á …
Það er spurning hvort einhver íslensk brúðhjón hafi áhuga á pizza-vendi í brúðkaupið í sumar? mbl.is/foodiggity
Pizza-skreyting í jakkafötin í staðin fyrir rós. Þetta er nú …
Pizza-skreyting í jakkafötin í staðin fyrir rós. Þetta er nú í meira lagi flippað. mbl.is/foodiggity
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert