Vinsælasta matarmyndin á Instagram í maí var...

Langar ykkur í?
Langar ykkur í? mbl.is/Instagram

Þið trúið þessu aldrei. Vér Íslendingar þykjum nú afskaplega flippuð og hress þegar kemur að ís og nýjungum í ísgerð. Má þar nefna ísbúðina Valdísi sem gott dæmi um þetta en þar kennir oft ýmissa grasa í nýsköpun eins og Tortóla ísinn hér um árið og Icehot1. 

En vinsælasta matarmyndin á Instagram í maí var af þessum áhugaverða (?) cheetos ís sem ku víst smakkast eins og cheetos (þó ekki sé tekið fram hvaða tegund af ostasnakkinu sé nákvæmlega notað). Til að toppa herlegheitin er snakkinu svo sáldrað yfir ísinn svo hann verður afskaplega appelsínugulur og fínn. 

Mun þetta trenda hér á landi? Stórefa það. 

Ísinn er ættaður úr smiðju Big Gay Ice Cream í New York sem er afar flippuð og skemmtileg ísbúð sem vert er að heimsækja. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert