Ægifagurt svart og hvítt eldhús

Stílhreint og fagurt. Hér ráða svartur og hvítur lögum og …
Stílhreint og fagurt. Hér ráða svartur og hvítur lögum og lofum. mbl.is/Elle Decor

Í þessu eldhúsi eru sterkar andstæður notaðar og útkoman er stórglæsileg. Svartur og hvítur marmari eru ráðandi í eldhúsinu og öll hönnun miðar að því að andstæðurnar verði sem mestar.

Eldhúsið er ægifagurt og stílhreint og lofthæðin er vel nýtt. Veggir og loft eru hvít, sem og öll loftljós. Passað er upp á hvert smáatriði eins og sjá má og efnisval er vandað og til mikillar fyrirmyndar. 

Borðkrókurinn er í beinu framhaldi af eldhúsinu. Bekkurinn er svartur …
Borðkrókurinn er í beinu framhaldi af eldhúsinu. Bekkurinn er svartur með hvítum lausum púðum. mbl.is/Elle Decor
Hér sést hvernig eldhúsið er því sem næst opið út …
Hér sést hvernig eldhúsið er því sem næst opið út í garð. Svartur og hvítur ráða hér ríkjum og útkoman er ægifögur og stílhrein. Borðstofuborðið er ægifagurt og við það er bekkur öðrum megin sem kemur vel út. mbl.is/Elle Decor
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert