Djúsí hamborgari með geggjuðu meðlæti

mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir

Í dag er akkúrrat fullkominn dagur til að fá sér gómsætan hamborgara. Skítt með veðrið enda ekkert sem segir að það þurfi endilega að grilla borgara úti þótt vissulega sé það skemmtilegra. Þess má þó geta að þeir allra hörðustu láta ekki smáræði eins og vonskuveður stöðva sig.

Það er Berglind Hreiðarsdóttir á Gotteri.is sem á þennan borgara og við segjum bara njótið vel!

Hamborgarar með Chili majónesi

  • 500 gr nautahakk
  • 60 gr mulið Ritz kex
  • 1 pískað egg
  • 1 tsk chile lime krydd
  • 1 tsk steikarkrydd (má líka setja 2 af þessu og sleppa hinu)
  • ostsneiðar
  • 10-15 stk sveppir
  • 3 rauðlaukar
  • 3 msk púðursykur
  • 6 msk smjör
  • 4-5 hamborgarabrauð
  • grænmeti (hér eru kál og tómatar)
  • vöfflufranskar
  • beikon
  • chili majónes frá E. Finnsson

Aðferð:

  1. Blandið hakki, Ritz kexi, eggi og kryddum saman í skál og blandið saman með höndunum.
  2. Þjappið hakkblöndunni í hamborgarabuff eða notið hamborgarapressu. Uppskriftin gefur 4-5 hamborgara eftir því hversu þykka þið viljið hafa þá.
  3. Gott er að plasta og kæla buffin á meðan meðlæti og annað er undirbúið.
  4. Hitið ofninn og setjið franskar á eina ofnskúffu og beikon á þá næstu (bökunarpappír undir), setjið í ofninn á meðan þið gerið annað meðlæti og grillið hamborgarana.
  5. Hvítlauksristaðir sveppir: Skerið sveppi í sneiðar og steikið upp úr smjöri, kryddið til með salti, pipar og hvítlauksdufti.
  6. Sultaður rauðlaukur: Skerið laukana í sneiðar og steikið upp úr smjöri, kryddið til með salti og pipar. Þegar hann hefur linast er púðursykrinum blandað saman við og leyft að malla við lágan hita í nokkrar mínútur.
  7. Grillið því næst borgarana og hitið brauðin (mér finnst gott að hafa þau í álpappír á efri grindinni því þá verða þau svo mjúk og góð), ekki gleyma ostinum og smá auka kryddi í lokin.
  8. Ég keypti nokkur krydd í Williams & Sonoma í Seattle um daginn og Steakhouse rub kryddið þeirra er dásamlegt á ýmislegt kjöt og svo var Chile lime kryddið líka skemmtileg tilbreyting. Hér getið þið þó að sjálfsögðu notað þau krydd sem ykkur þykja góð.
  9. Raðið þessu síðan öllu saman og njótið með Chili Majónesi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert