Svona lítur Bragginn Bístró út

Bragginn Bistró í Nauthólsvík.
Bragginn Bistró í Nauthólsvík. mbl/Arnþór Birkisson

Bragginn bar & bistró er nýr veitingastaður við Nauthólsvík sem leggur áherslu á að sinna útivistarfólki og vera heimavöllur háskólanema. Á matseðli er óformlegur matur á borð við hamborgara, samlokur og salöt í fyrirrúmi auk þess sem boðið er uppá barsnarl og smærri rétti.

Nýr veitingastaður var opnaður við Nauthólsvík fyrir skemmstu en Bragginn bar & bistró er eins og nafnið gefur til kynna til húsa í nýuppgerðum bragga við víkina. Staðurinn er hugsaður til að sinna útivistarfólki sem þarna fer um auk þess að vera heimavöllur háskólastúdenta, segir Dalmar Ingi Daðason, veitingastjóri á Bragganum.
Barinn vekur athygli.
Barinn vekur athygli. mbl/Arnþór Birkisson
Dalmar Ingi Daðason, veitingastjóri á Bragganum.
Dalmar Ingi Daðason, veitingastjóri á Bragganum. mbl/Arnþór Birkisson

„Það hefur vantað stað þar sem nemar Háskólans í Reykjavík geta fengið góð kjör á mat og drykk á stað sem er líka nálægt þeim. Þetta bætir þjónustuna við háskólanema og þá sem heimsækja Nauthólsvík. Við erum með góðan mat og reynum að hafa hann á góðu verði, það er grunnhugmyndin; að opna stað þar sem allir geta komið og notið góðrar stundar,“ segir Dalmar en áhersla er lögð á óformlegan mat á borð við hamborgara, samlokur, salöt og nachos auk þess sem boðið er uppá barsnarl og smærri rétti. Vegan-réttir eru líka á boðstólum.

Dalmar þekkir háskólastemninguna en hann kláraði eina önn við HR áður en hann tók sér frí til að sinna þessu verkefni. Faðir hans, Daði Agnarsson, er rekstrarstjóri staðarins en hann hefur áður verið með veitingarekstur á Umferðarmiðstöðinni.

mbl/Arnþór Birkisson
Hönnun staðarins er skemmtileg.
Hönnun staðarins er skemmtileg. mbl/Arnþór Birkisson

Horfa til sjávar

„Kokkurinn okkar er spænskur en er búinn að búa hérna í níu ár. Maturinn er með spænsku ívafi. Við horfum líka til sjávar enda erum við hér við ströndina og sjóinn. Við erum með fisk og rækjur.“

Háskólanemar fá 20% afslátt og á staðnum er líka nóg af innstungum og USB-tengjum til að hlaða síma og tölvur. Dalmar vonast líka eftir að fá sjósundsfólk í heimsókn en hann er sjálfur nýfarinn að stunda sjósund af miklum krafti og líkar vel. „Það er mjög gott að fara í sjóinn, synda aðeins og fara síðan í pottinn. Það eru ótrúlega margir sem stunda þetta, hér iðar allt af lífi alla daga. Hér er góð tenging við ströndina og sjóinn. Líka alla sem búa nálægt eða eru í útivist en hér í kring eru margar göngu- og hlaupaleiðir.“

mbl/Arnþór Birkisson
Búið er að koma fyrir tjaldi við hlið staðarins.
Búið er að koma fyrir tjaldi við hlið staðarins. mbl/Arnþór Birkisson

Var þekkt sem Hótel Winston

Bragginn er sambyggður skemmu sem Bretar byggðu í seinni heimsstyrjöldinni og gekk undir nafninu „Hótel Winston“. Það er Reykjavíkurborg sem hefur staðið að framkvæmdum og endurbyggingu á húsnæðinu í samstarfi við Háskólann í Reykjavík en nemendaaðstaða og frumkvöðlasetur verða í gömlu skemmunni.

Einnig verður opnaður síðsumars eða í haustbyrjun salur þar sem Bragginn getur haft fundaraðstöðu, lítinn veislusal eða pláss fyrir hópa. Útisvæðið er jafnframt stórt og mikið en verið er að leggja lokahönd á það. Heimsmeistaramótið í knattspyrnu er sýnt í sjónvörpum inni en líka er hægt að bæta við skjám úti í tjaldi sem verður uppi að minnsta kosti meðan á keppninni stendur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert