Trufluð s'mores ídýfa

Það er freistandi að tvídýfa í þennan trylling, við dæmum …
Það er freistandi að tvídýfa í þennan trylling, við dæmum engan. mbl.is/cleverlysimple

S'more er amerískur eftirréttur sem vinsælt er að útbúa við varðeld í útilegum ytra. Samanstendur þetta ljúfmeti af grilluðum sykurpúðum og þykku lagi af súkkulaði sem klemmt er á milli tveggja graham kexkaka og borðað eins og samloka. S'more er stytting á „some more“ og er hægt að rekja þennan ameríska eftirrétt allt aftur til 1920 en vinsælt var að gæða sér á þessu gotteríi í skátaferðum. Eru orðnar ótal útgáfur af eftirréttinum sem byrjaði sem einföld samloka; bökur, kökur, eftirréttarpizzur og ídýfur. Við mælum að sjálfsögðu með gömlu góðu s'mores samlokunum í útileguna, en fyrir þá sem ekki eru á leið í tjaldferð er hérna uppskrift af s'mores ídýfu sem auðvelt er að gera í ofninum heima. 

Trufluð s'mores ídýfa

  • 1 pakki Graham kex
  • 200 gr. mjólkursúkkulaði 
  • 1 poki af sykurpúðum

Aðferð

  1. Takið eldfast mót og hitið ofninn í 200 gráður. 
  2. Brjótið súkkulaðið og setjið í botn á eldfasta mótinu. 
  3. Raðið sykurpúðum ofan á súkkulaðið, reynið að koma sem mestu fyrir og ekki vera hrædd við að troða þeim þétt. 
  4. Stingið forminu inn í ofninn og bakið í 5 til 7 mínútur. Hafið auga á sykurpúðunum, og kippið forminu út þegar þeir eru orðnir vel brúnaðir að ofan. 
  5. Leyfið ídýfunni að kólna í um 5 mínútur áður en hún er borin á borð. 
  6. Berið fram með Graham kexi til að dýfa í. Það er freistandi að tvídýfa, við dæmum ekki. 
mbl.is/cleverlysimple
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert