Partí-pavlóvur sem gera allt vitlaust

Það er fátt lekkerara eða bragðbetra en smá pavlóvur eða partí-pavlóvur eins og þær kallast hér. Þær eru bæði fullkomnar í veisluna eða sem eftirréttir. Hægt er að leika sér endalaust með meðlætið en þessi útfærsla slær öll met og við hvetjum ykkur til að prófa. 

Partí-pavlovur

50 pínulitlar

  • 4 eggjahvítur
  • 1 ½ bolli sykur (300 g)
  • 1 msk. flórsykur
  • 1 msk. edik
  • 1 msk. vatn
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 1 poki Appolo-súkkulaðilakkrískurl

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 220°C, ekki blástur.
  2. Þeytið allt sem er í uppskriftinni saman í 10 mín.
  3. Bætið Appolo-súkkulaðilakkrískurli út í og blandið saman við með sleikju.
  4. Setjið bökunarpappír á tvær bökunarplötur. Festið pappírinn með örlitlu af deigi í hornin.
  5. Setjið deig með 2 skeiðum í litla toppa á pappírinn, líka má notast við sprautupoka, þær mega vera þétt.
  6. Setjið þær í ofninn og lækkið jafnframt hitann í 110°C. Bakið í 40 mín. hverja plötu og hækkið hitann aftur í byrjun við seinni plötuna.
  7. Kælið kökurnar.
  8. Hægt er að baka á blæstri og baka 2-3 plötur í einu. Þær verða aðeins þurrari en þá er gott að setja rjóma tímanlega á þær svo aðeins blotni í þeim.

Ofan á:

  • ½ lítri rjómi
  • Bingókúlusósa
  • Jarðarber eða hindber
  • Myntulauf eða dill

Þeytið ½ lítra af rjóma og setjið rjómatopp ofan á hverja köku ásamt jarðarberi eða hindberi og bingókúlusósu. Fallegt er að skreyta ofan á með brotnum marens.  

Bingókúlusósa:

  • 1 dl rjómi
  • 1 poki Bingólakkrískúlur

Bræðið allt saman í potti og kælið örlítið.

mbl.is/
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert