Svona eru eldhús hinna ríku og frægu

Lauren Conrad er með puttann á púlsinum og hefur komið …
Lauren Conrad er með puttann á púlsinum og hefur komið sér ákaflega fallega fyrir í íbúð sinni í Pacific Palisades. Hvítar innréttingar, subway-flísar, hráar viðarhillur og koparlituð vifta kemur afar vel út í eldhúsinu. mbl.is/MyDomaine

Forvitnin er stundum að fara með mann. Sérstaklega þegar kemur að því að sjá hvernig aðrir búa, og fyrir mataráhugafólk er sérstaklega gaman að sjá hvernig eldhúsin eru útbúin. Sumir hafa meira á milli handanna en aðrir, sumir svo að þeir vita ekki aura sinna tal og hafa ekki hugmynd um hvernig þeir eiga að eyða peningunum, og því er splæst í alls konar flottheit. Við tökum hér saman nokkur eldhús hjá Hollywood-stjörnum og pólitíkusum sem eru hreint ekkert slor.

Leikarinn Patrick Dempsey er hrifinn af einföldum og afslöppuðum stíl. …
Leikarinn Patrick Dempsey er hrifinn af einföldum og afslöppuðum stíl. Það væri sko vel hægt að sötra góðan kaffibolla í þessu eldhúsi. Við erum einstaklega hrifnar af stóru krítartöflunni á veggnum. mbl.is/ArcitecturalDigest
Eldhús leikkonunnar og heilsugúrúsins Gwyenth Paltrow er hvítt frá lofti …
Eldhús leikkonunnar og heilsugúrúsins Gwyenth Paltrow er hvítt frá lofti og niður í gólf með fallegum marmaraklæðningum. Þar flæðir inn falleg dagsbirta og örugglega hægt að henda sér í nokkrar jógaæfingar á gólfinu, það er svo bjart og rúmgott. mbl.is/Goop
Beyoncé og Jay-Z eiga einstaklega stílhreint eldhús í setri sínu …
Beyoncé og Jay-Z eiga einstaklega stílhreint eldhús í setri sínu í Holmby Hills. Eldhúsið er afar nýtískulegt, en það opnast út á stórar svalir með útsýni yfir fallegar hlíðar sem fær flesta til að kikna í hnjánum. mbl.is/BenBecal
Cameron Diaz er óhrædd við liti og í íbúð hennar …
Cameron Diaz er óhrædd við liti og í íbúð hennar á Manhattan má finna smaragðsgrænar innréttingar með gylltri klæðningu og bekkjum, ásamt fallega gamaldags blöndunartækjum. mbl.is/ElleDecor
Turtildúfurnar Ellen Degeneres og Portia De Rossi hafa búið einstaklega …
Turtildúfurnar Ellen Degeneres og Portia De Rossi hafa búið einstaklega vel um sig hvað varðar hjarta heimilisins. Eldhúsið þeirra í Beverly Hills er skemmtilega sveitalegt í fallegum jarðtónum. Hangandi eldhússkápur í gleri fyrir ofan eyjuna grípur athyglina strax. mbl.is/ArchitecturalDigest
Amal og George Clooney slá um sig með truflaðri lofthæð …
Amal og George Clooney slá um sig með truflaðri lofthæð og fallegri viðarklæðningu í sumarhúsi sínu í Baja, Kaliforníu. mbl.is/ArchitecturalDigest
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert