Boðin þáttaka í sænsku Master Chef-þáttunum

mbl

Tengdadóttur Íslands, Jennifer Berg, var boðið að taka þátt í sænsku útgáfu matreiðsluþáttanna Master Chef sem njóta gríðarlegra vinsælda. Jennifer er öflugur matarbloggari og heldur úti vinsælli vefsíðu – bæði á sænsku og ensku og er með dyggan fylgjendahóp.

Það þykir mikill heiður að vera boðin þátttaka í þætti sem þessum og segir Jennifer að það hafi vissulega verið freistandi en þegar boðið hafi komið hafi hún þegar verið búin að skuldbinda sig í verkefni víða um heim en hún starfar sem fyrirsæta. Hún hafi hins vegar boðið framleiðendum þáttanna að hringa í sig að ári og vonandi fáum við Íslendingar að sjá Jennifer keppa með þeim bestu í Master Chef. 

Jennifer Berg er listakokkur.
Jennifer Berg er listakokkur.
Jennifer Berg nýtur mikilla vinsælda sem matarbloggari.
Jennifer Berg nýtur mikilla vinsælda sem matarbloggari. Jennifer Berg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert